‏ Psalms 140

1
140:1 í sumum biblíum.
2
140:1 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, frelsaðu mig frá vondum mönnum. Verndaðu mig gegn ofbeldismönnunum
3
140:2 í flestum biblíum.
sem sitja á svikráðum alla daga og vekja ófrið.
4
140:3 í flestum biblíum.
Orð þeirra eru eins og eitruð höggormsbit.
5
140:4 í flestum biblíum.
Varðveittu mig gegn ofbeldi þeirra og svikráðum.
6
140:5 í flestum biblíum.
Þessir ofríkismenn hafa lagt gildru fyrir mig, sett út snöru sína. Þeir bíða þess að geta kastað yfir mig neti, flækja mig í möskva sína.

7
140:6 í flestum biblíum.
8
140:7 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, þú ert minn Guð! Hlustaðu á grátbeiðni mína! Láttu ekki svikráð níðinganna heppnast.
9
140:8 í flestum biblíum.
Láttu þá ekki ná árangri eða hreykja sér hátt.
10
140:9 í flestum biblíum.
Svikráð þeirra komi þeim sjálfum í koll!
11
140:10 í flestum biblíum.
Eldsglóðum rigni yfir þá. Steyptu þeim í gjár sem þeir komast ekki úr.

12
140:11 í flestum biblíum.
Láttu lygara einskis ávinnings njóta í landi okkar, en refsaðu þeim í skyndi.
13
140:12 í flestum biblíum.
Drottinn mun örugglega rétta hlut fólks sem þolað hefur ofsóknir þeirra, hann mun flytja mál hinna snauðu.
14
140:13 í flestum biblíum.
Hinir guðhræddu þakka þér. Þeir fá að lifa í nálægð þinni.
Copyright information for IslLO