‏ Psalms 142

1 2Ég bið og bið til Drottins, stöðugt grátbæni ég hann. 3Ég er hræddur og ráðvilltur. Þú einn þekkir leiðina framhjá gildrum óvina minna. 4Enginn maður hugsar hlýtt til mín. Hvergi er góð ráð að fá. Öllum er sama um mig. 5Því bið ég til Drottins og segi: „Drottinn, þú einn ert skjól mitt á jörðu, ég er hvergi öruggur nema hjá þér. 6Heyrðu hróp mitt því að ég er mjög þjakaður. Frelsaðu mig frá þeim sem ofsækja mig, því að þeir eru mér yfirsterkari. 7Leiddu mig úr þessum mikla vanda og þá mun ég lofa þig. Hinir guðhræddu munu þyrpast til mín og fagna með mér yfir hjálp þinni.“
Copyright information for IslLO