‏ Psalms 145

1 2Ég vil lofa þig, þú Guð minn og konungur, og vegsama nafn þitt hvern einasta dag, já að eilífu! 3Mikill er Drottinn! Lofið hann án afláts! Dýrð hans er meiri en við fáum skilið! 4Sérhver kynslóð fræðir börn sín um hans mörgu dásemdarverk. 5Ég vil íhuga dýrð þína og vegsemd, glæsileik þinn og kraftaverk. 6Undur þín eru á allra vörum, ég vil tala um stórvirki þín. 7Öllum er ljúft að segja frá kærleika þínum, syngja um réttlæti þitt. 8Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, seinn til reiði og fullur góðvildar. 9Drottinn er öllum góður og miskunn hans hvílir yfir öllu sem hann hefur skapað. 10Öll sköpunin þakkar þér Drottinn, og þjóð þín lofar þig. 11Þau segja frá dýrð ríkis þíns, og tala um kraft þinn og mátt. 12Þau víðfrægja mikilleik þinn og máttarverk – dýrð konungdóms þíns. 13Því að á ríki þínu er enginn endir, veldi þitt nær frá kynslóð til kynslóðar.

14Drottinn reisir við hina föllnu og styður þá sem ætla að hníga. 15Allra augu mæna á þig eftir hjálp, því að þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma. 16Þú uppfyllir þarfir þeirra og blessar þá.

17Drottinn er réttlátur og miskunnsamur í öllu sem hann gerir. 18Hann er nálægur öllum sem ákalla hann í einlægni. 19Hann uppfyllir þarfir þeirra sem óttast hann og elska. Hann heyrir hróp þeirra og hjálpar þeim. 20Hann verndar alla þá sem elska hann, en útrýmir öllum óguðlegum.

21Ég vil lofa Drottin! Og þið öll, vegsamið hans heilaga nafn á meðan ævi ykkar endist.
Copyright information for IslLO