‏ Psalms 147

1Hallelúja! Já, lofið Drottin! Það er gott að lofa Drottin! Indælt og rétt!

2Hann er að endurreisa Jerúsalem og flytja hina herleiddu heim. 3Hann reisir upp hina niðurbeygðu og bindur um sár þeirra.

4Hann þekkir fjölda stjarnanna, já og hverja fyrir sig með nafni! 5Mikill er Drottinn! Vald hans er stórkostlegt! Þekking hans er takmarkalaus. 6Drottinn styður auðmjúka, en varpar illmennum til jarðar. 7Syngið honum þakkarljóð, lofið Guð með hörpuleik. 8Hann fyllir himininn skýjum, gefur steypiregn og klæðir fjöllin grænu grasi. 9Hann fæðir hin villtu dýr og hrafnarnir krunka til hans eftir æti. 10Í hans augum kemst sprettharður foli varla úr sporunum og máttur mannsins má sín lítils. 11En hann gleðst yfir þeim sem elska hann og reiða sig á kærleika hans og gæsku.

12Lofa þú hann, Jerúsalem! Vegsama Guð þinn, Síon! 13Því að hann hefur gert múra þína öfluga og blessað börnin þín. 14Hann lætur frið haldast í landinu og fyllir hlöður þínar af úrvals hveiti. 15Hann sendir boð sín til jarðar, skipanir hans berast hratt eins og vindurinn. 16Skjannahvít mjöllin er frá honum komin og hrímið sem glitrar á jörðinni. 17Haglélið er líka hans verk og frostið sem bítur í kinnarnar. 18En síðan sendir hann hlýjan vorvind, snjórinn þiðnar og árnar ryðja sig. 19Hann kunngjörði Ísrael lögmál sitt og ákvæði 20– það hefur hann ekki gert við neina aðra þjóð, nei, þeim kennir hann ekki fyrirmæli sín.

Hallelúja! Dýrð sé Drottni!
Copyright information for IslLO