Psalms 16
1Bjarga mér, ó Guð, því að hjá þér leita ég skjóls. 2Ég sagði við Drottin: „Þú ert minn Drottinn, þú ert mín eina hjálp.“ 3Ég þrái samfélag við trúaða fólkið í landinu, á því hef ég alla mína velþóknun. 4Þeir sem kjósa sér annan guð uppskera þrengingu og tár. Ekki vil ég snerta við fórnum þeirra né nefna guði þeirra á nafn. 5Drottinn er arfleifð mín. Hann er fjársjóður minn og fögnuður alla daga! Hann verndar allar eigur mínar. 6Hann hefur gefið mér unaðsreit að erfð. 7Ég lofa Drottin sem gefur mér góð ráð. Á nóttunni leiðbeinir hann mér og segir mér hvað gera skuli. 8Drottinn hverfur mér aldrei úr huga. Af því að hann er með mér hrasa ég hvorki né fell. 9Nú fagnar andi minn, líkami og sál 10því að þú munt ekki skilja mig eftir meðal hinna dánu né leyfa að þinn elskaði rotni í gröfinni. 11Þú hefur leyft mér að lifa og fagna. Ég mun njóta þeirrar miklu gleði að lifa með þér að eilífu!
Copyright information for
IslLO