‏ Psalms 19

1 ▼
▼19:1 í sumum biblíum.
–
2 ▼
▼19:1 í flestum biblíum.
Himnarnir sýna okkur dýrð Guðs. Þeir eru þögull vitnisburður um mikilleik verka hans.
3 ▼
▼19:2 í flestum biblíum.
Dagur og nótt vitna um vísdóm Drottins.
4 ▼
▼19:3 í flestum biblíum.
–
5 ▼
▼19:4 í flestum biblíum.
Hljóðlaust og án orða bera þau boðin um gervalla jörðina. Sólin fer sína braut um loftin – einmitt þá sem Drottinn setti henni í upphafi.
6 ▼
▼19:5 í flestum biblíum.
Hnarreist siglir hún yfir hvolfið, geislandi eins og brúður í brúðkaupi eða hlaupari sem hlakkar til að renna sitt skeið.
7 ▼
▼19:6 í flestum biblíum.
Sólin fer um himininn frá austri til vesturs, ekkert fær dulist við geislaflóð hennar og yl.

8 ▼
▼19:7 í flestum biblíum.
–
9 ▼
▼19:8 í flestum biblíum.
Lög Guðs eru fullkomin. Þau vernda og auka skilning, gleðja og lýsa.
10 ▼
▼19:9 í flestum biblíum.
Lög Guðs eru eilíf, réttlát og hrein.
11 ▼
▼19:10 í flestum biblíum.
Þau eru dýrmætari en gull. Þau eru sætari en hunang.
12 ▼
▼19:11 í flestum biblíum.
Því að þau vara okkur við hættum og efla velgengni þeirra sem hlýða þeim.

13 ▼
▼19:12 í flestum biblíum.
Hver verður var við syndina sem loðir við hjarta mitt? Hreinsa mig af leyndum syndum.
14 ▼
▼19:13 í flestum biblíum.
Forða mér frá vondum mönnum, og stöðva hönd mína að ég geri ekkert ljótt. Sýknaðu mig af syndum mínum svo að ég lifi hreinu lífi.

15 ▼
▼19:14 í flestum biblíum.
Ó, að orðin á vörum mér og hugsanir mínar geðjist þér, þú Guð, klettur minn og frelsari.
Copyright information for IslLO