Psalms 21
1 ▼▼21:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼21:1 í flestum biblíum.
Drottinn! Yfir valdi þínu og mætti fagnar konungurinn. Hann gleðst stórlega yfir hjálp þinni! 3 ▼▼21:2 í flestum biblíum.
Því að þú hefur veitt honum það sem hjarta hans þráir, allt sem hann bað þig um! 4 ▼▼21:3 í flestum biblíum.
Þú leiddir hann til valda og veittir honum velgengni og blessun. Þú krýndir hann kórónu úr gulli. 5 ▼▼21:4 í flestum biblíum.
Hann bað um langa ævi og góða daga og þú heyrðir bænir hans. Ævidagar hans munu aldrei taka enda! 6 ▼▼21:5 í flestum biblíum.
Frægð og frama gafst þú honum, íklæddir hann vegsemd og dýrð. 7 ▼▼21:6 í flestum biblíum.
Þú veitir honum eilífa blessun og gleður hann með nærveru þinni meira en orð fá lýst. 8 ▼▼21:7 í flestum biblíum.
Konungurinn treystir Drottni og því mun hann aldrei hrasa né falla. Hann reiðir sig á elsku og trúfesti þess Guðs sem er æðri öllum guðum. 9 ▼▼21:8 í flestum biblíum.
Drottinn, hönd þín mun ná öllum óvinum þínum og hatursmönnum. 10 ▼▼21:9 í flestum biblíum.
– 11 ▼▼21:10 í flestum biblíum.
Þegar þú stígur fram eyðast þeir í eldinum sem út frá þér gengur. Drottinn mun afmá þá og afkomendur þeirra. 12 ▼▼21:11 í flestum biblíum.
Samsæri hafa þeir gert gegn þér Drottinn, en það mun ekki takast. 13 ▼▼21:12 í flestum biblíum.
Þegar þeir sjá boga þinn spenntan, flýja þeir sem fætur toga. 14 ▼▼21:13 í flestum biblíum.
Drottinn, þinn er mátturinn og dýrðin! Heyr þú lofgjörð okkar! Um máttarverk þín syngjum við og kveðum!.
Copyright information for
IslLO