‏ Psalms 23

1Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert skorta.

2Hann lætur mig hvílast á grænum grundum og njóta næðis hjá lygnum vötnum. 3Hann hressir mig og styrkir og leiðir mig réttan veg. Hann hjálpar mér, nafni sínu til vegsemdar.

4Og jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér og hughreystir mig!

5Já, og þú heldur mér veislu frammi fyrir fjendum mínum og þeir geta ekkert við því gert! Þú smyrð höfuð mitt með blessun og annast ríkulega allar mínar þarfir.

6Gæska þín og velþóknun fylgja mér alla ævidaga mína og síðan fæ ég að búa hjá þér að eilífu!
Copyright information for IslLO