‏ Psalms 26

1Drottinn, láttu mig ná rétti mínum, því að ég hef kappkostað að halda boð þín og treyst þér af öllu hjarta. 2Rannsakaðu mig yst sem innst, Drottinn, og prófaðu viðhorf mín og einlægni. 3Afstaða mín til lífsins og allra hluta mótaðist hjá þér. Þú kenndir mér elsku og sannleika. 4Ég forðast félagsskap hræsnara og þeirra sem tala lygi. 5Ég hef andstyggð á samkundum syndaranna og stíg ekki fæti þar inn. 6Ég þvæ hendur mínar, gef til kynna sakleysi mitt og geng að altari þínu 7með þakkargjörð á vörum, minnugur máttarverka þinna.

8Drottinn, ég elska hús þitt – helgidóminn þar sem dýrð þín birtist! 9 10Láttu mér ekki farnast eins og syndurum og morðingjum eða þeim sem beita saklausa menn vélráðum og heimta mútur.

11Nei, með slíkum á ég enga samleið. Ég geng hinn beina, en bratta veg sannleikans. Miskunna mér og frelsa mig. 12Opinskátt og í áheyrn allra lofa ég Drottin, hann sem ver mig hrösun og falli.
Copyright information for IslLO