Psalms 28
1Ég hrópa til þín um hjálp, Drottinn, því að þú ert klettur hjálpræðis míns. Ef þú hjálpaðir ekki væri úti um mig. Framundan væri ekkert nema dauðinn. 2Drottinn, ég lyfti höndum til himins og ákalla þig um hjálp. Ó, heyr þú grátbeiðni mína! 3Drottinn, refsaðu mér ekki ásamt illgjörðamönnunum, þeim sem sitja á svikráðum við nágranna sína. 4Refsaðu þeim eins og rétt er. Illvirki þeirra eiga skilið réttlátan dóm. 5Þeir hugsa ekkert um Guð, sköpun hans og verk. Þess vegna mun Guð ryðja þeim úr vegi, rífa þá eins og ónýtt hús sem ekki verður endurreist. 6Lofaður sé Drottinn! Hann heyrði grátbeiðni mína! 7Hann er styrkur minn, skjól mitt gegn öllum árásum. Honum treysti ég og hann hjálpaði mér. Gleðin svellur í brjósti mér og brýst út í lofgjörð til hans! 8Drottinn verndar sitt fólk og veitir konungi sínum sigur. 9Stattu vörð um þjóð þína, Drottinn! Vernda og blessa þitt útvalda fólk. Eins og fjárhirðir leiðir sauði sína, þá leið og vernda þjóð þína að eilífu.
Copyright information for
IslLO