Psalms 29
1Þið englar Drottins, lofið hann í mætti hans og dýrð! 2Lofið hann í mikilleik dýrðar hans, þeirri dýrð er stafar af nafni hans. Tilbiðjið hann í helgum skrúða. 3Raust Drottins fyllir himininn, hún kveður við eins og þruma! 4Rödd hans hljómar kröftuglega, hún hljómar af mikilleik og tign. 5– 6Hún fellir sedrustrén til jarðar og klýfur hin hávöxnu tré í Líbanon. Raust Drottins skekur fjöllin í Líbanon og hristir Hermonfjall. Hans vegna hoppa þau um eins og ungir kálfar! 7– 8Rödd Drottins kveður við í eldingunni og endurómar í eyðimörkinni sem nötrar endanna á milli. 9Raust Drottins skekur skógartrén, feykir burt laufi þeirra og lætur hindirnar bera fyrir tímann. Allir þeir sem standa í helgidómi hans segja: „Dýrð! Já, dýrð sé Drottni!“ 10Flóðið mikla var ógurlegt, en Drottinn er enn meiri! Og enn birtir hann mátt sinn og kraft. 11Hann mun veita lýð sínum styrkleik og blessa hann með friði og velgengni.
Copyright information for
IslLO