‏ Psalms 33

1Gleðjist og fagnið fyrir Drottni, þið hans trúuðu, því að lofsöngur hæfir réttlátum! 2Leikið af þrótti á alls konar hljóðfæri og lofið Drottin. 3Lofsyngið honum með nýjum söngvum. Sláið strengina ákaft og hrópið fagnaðaróp!

4Því að orð Drottins er áreiðanlegt – því má treysta. Öll hans verk eru í trúfesti gjörð. 5Hann elskar allt sem rétt er og gott, kærleikur hans umvefur heiminn. 6 7Það var orð Drottins sem skapaði himininn og alla hans stjörnumergð. Og höfunum safnaði hann saman og bjó þeim sinn rétta stað.

8Allir heimsbúar – bæði háir og lágir – óttist Drottin, og nálgist hann með lotningu. 9Því að hann talaði og þá stóð heimurinn þar! Orð hans hljómaði og veröldin varð til!

10Drottinn ónýtir áform þjóða sem gegn honum rísa 11en fyrirætlanir hans standa að eilífu, frá kynslóð til kynslóðar.

12Sæl er sú þjóð sem á Drottin að Guði, það fólk sem hann hefur kosið eignarlýð sinn. 13 14 15
Texti vers(s) 15 hefur verið sameinaður þessu versi.
Texti vers(s) 15 hefur verið sameinaður þessu versi.
Drottinn lítur niður af himni, horfir á mannanna börn. Hann hefur myndað hjörtu þeirra og gefur gætur að öllum athöfnum þeirra.

16 17Velbúinn her tryggir konungi ekki sigur og ofurafl eitt stoðar lítið. Stríðshestur er ekki til að reiða sig á, styrkur hans einn frelsar engan. 18 19En, – augu Drottins vaka yfir þeim sem óttast hann, þeim sem reiða sig á elsku hans. Hann frelsar þá frá dauða, varðveitir líf þeirra á neyðarstund.

20Ég hef sett traust mitt á Drottin. Enginn getur hjálpað nema hann, hann er skjöldur og vígi! 21Hans vegna gleðjumst við og fögnum. Hans heilaga nafni treystum við. 22Miskunn þín Drottinn umvefji okkur. Við vonum á þig.
Copyright information for IslLO