Psalms 34
1 ▼▼34:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼34:1 í flestum biblíum.
Ég vil lofa Drottin öllum stundum, vegsama hann seint og snemma. 3 ▼▼34:2 í flestum biblíum.
Ég hrósa mér af Drottni. Hinir hógværu hlusta og öðlast nýjan kjark. 4 ▼▼34:3 í flestum biblíum.
Lofið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans. 5 ▼▼34:4 í flestum biblíum.
Ég hrópaði til hans og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því sem ég hræddist. 6 ▼▼34:5 í flestum biblíum.
Lítið til hans og gleðjist og þið munuð ekki verða til skammar. 7 ▼▼34:6 í flestum biblíum.
Ég var vesæll og aumur, en ég hrópaði til Drottins. Drottinn heyrði hróp mitt og frelsaði frá öllu því sem ég hræddist. 8 ▼▼34:7 í flestum biblíum.
Engill Drottins stendur vörð um þá sem óttast hann, og hann bjargar þeim. 9 ▼▼34:8 í flestum biblíum.
Finndu og sjáðu hve Guð er góður! Sæll er sá sem leitar hælis hjá honum. 10 ▼▼34:9 í flestum biblíum.
Treystið Drottni og sýnið honum lotningu – óttist hann – því að þeir sem óttast hann líða engan skort. 11 ▼▼34:10 í flestum biblíum.
Ung ljón búa við skort en þeir sem leita Drottins fara einskis góðs á mis. 12 ▼▼34:11 í flestum biblíum.
Börnin góð, komið og ég mun kenna ykkur að óttast Drottin. Það er mikilvægt. 13 ▼▼34:12 í flestum biblíum.
Viljið þið lifa langa og góða ævi? 14 ▼▼34:13 í flestum biblíum.
Gætið þá tungu ykkar! Segið aldrei ósatt orð. 15 ▼▼34:14 í flestum biblíum.
Haldið ykkur frá öllu illu og ástundið það sem gott er. Reynið að lifa í sátt við aðra menn og keppið eftir friði. 16 ▼▼34:15 í flestum biblíum.
Því að augu Drottins hvíla á hinum réttlátu og hann hlustar eftir bænum þeirra. 17 ▼▼34:16 í flestum biblíum.
En öllum óguðlegum mun Drottinn eyða og afmá minningu þeirra af jörðinni. 18 ▼▼34:17 í flestum biblíum.
Þegar réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn og frelsar þá úr nauðum. 19 ▼▼34:18 í flestum biblíum.
Já, Drottinn er nálægur öllum þeim sem hafa auðmjúkt hjarta. Hann frelsar þá sem í einlægni og auðmýkt iðrast synda sinna. 20 ▼▼34:19 í flestum biblíum.
Góður maður kemst oft í vanda – fær sinn skammt af mótlæti – en Drottinn á lausn við öllu slíku. 21 ▼▼34:20 í flestum biblíum.
Jafnvel gegn slysum verndar Drottinn hann. 22 ▼▼34:21 í flestum biblíum.
Ógæfan eltir og drepur óguðlegan mann og þeir sem hata réttláta bíða síns dóms. 23 ▼▼34:22 í flestum biblíum.
En Drottinn frelsar líf þjóna sinna. Enginn sem leitar hælis hjá honum verður dæmdur sekur.
Copyright information for
IslLO