Psalms 37
1Öfundaðu aldrei vonda menn, 2því að fyrr en varir eru þeir fallnir og visna eins og grasið. 3Treystu heldur Drottni, vertu góðgjarn og sýndu kærleika. Þá muntu búa öruggur í landinu og farnast vel. 4Þú skalt gleðjast í Drottni – og hann mun veita þér það sem hjarta þitt þráir. 5Fel Drottni framtíð þína, áform þín og verk, og treystu honum. Hann mun vel fyrir öllu sjá. 6Heiðarleiki þinn og hreinskilni verða öllum augljós, og Drottinn mun láta þig ná rétti þínum. 7Hvíldu í Drottni og treystu honum. Bíð þess í þolinmæði að hann hefjist handa. Öfunda ekki vonda menn sem vegnar vel. 8Láttu af reiðinni! Slepptu heiftinni. Vertu ekki svekktur og áhyggjufullur – slíkt leiðir ekki til góðs. 9Þeir sem illt fremja verða þurrkaðir út, en þeir sem treysta Drottni eignast landið og gæði þess. 10Innan skamms verða guðleysingjarnir á bak og burt. Þegar þú leitar þeirra eru þeir horfnir. 11En hinir hógværu fá landið til eignar, þeir munu hljóta blessun og frið. 12– 13Drottinn hlær að þeim sem brugga launráð gegn hans trúuðu. Hann hefur þegar ákveðið daginn er þeir verða dæmdir. 14Óguðlegir hyggja á illt gegn réttlátum, undirbúa blóðbað. 15En þeir munu farast fyrir eigin sverði og bogar þeirra verða brotnir. 16Betra er að eiga lítið og vera guðrækinn, en óguðlegur og hafa allsnægtir, 17því að óguðlegir munu falla, en Drottinn annast sína trúuðu. 18Daglega skoðar Drottinn réttlætisverk trúaðra og reiknar þeim eilíf laun. 19Hann styður þá í kreppunni og heldur lífinu í þeim í hallæri. 20Vantrúaðir farast og óvinir Guðs visna eins og grasið. Eins og sinu verður þeim brennt, þeir líða burt eins og reykur. 21Guðlaus maður tekur lán og borgar ekki, en hinn guðrækni er ónískur og gefur með gleði. 22Þeir sem Drottinn blessar eignast landið, en bannfærðum verður útrýmt. 23Drottinn stýrir skrefum hins guðrækna og gleðst yfir breytni hans. 24Þótt hann falli þá liggur hann ekki flatur því að Drottinn reisir hann á fætur. 25Ungur var ég og nú er ég gamall orðinn, en aldrei sá ég Drottin snúa baki við guðhræddum manni né heldur börn hans biðja sér matar. 26Nei, guðræknir menn eru mildir og lána og börn þeirra verða öðrum til blessunar. 27Viljir þú búa við frið og lifa lengi, þá forðastu illt en gerðu gott, 28því að Drottinn hefur mætur á góðum verkum og yfirgefur ekki sína trúuðu, hann mun varðveita þá, en uppræta niðja óguðlegra. 29Hinir réttlátu fá landið til eignar og búa þar mann fram af manni. 30– 31Guðrækinn maður talar speki, enda réttsýnn og sanngjarn. Lögmál Guðs er í hjarta hans og hann kann að greina gott frá illu. 32Ranglátir menn njósna um réttláta, vilja þá feiga. 33En Drottinn stöðvar áform illvirkjanna og sýknar réttláta fyrir dómi. 34Óttastu ekki, því að Drottinn mun svara bæn þinni! Gakktu hiklaust á hans vegum. Á réttum tíma mun hann veita þér velgengni og uppreisn æru. Þá muntu sjá illvirkjunum útrýmt. 35– 36Ég sá vondan mann og hrokafullan – hann þandi sig út eins og laufmikið tré – en svo var hann horfinn! Ég leitaði eftir honum, en fann hann ekki framar. 37En hvað um hinn ráðvanda og hreinskilna? Það er önnur saga! Því að góðir menn og friðsamir eiga framtíð fyrir höndum. 38Illum mönnum verður útrýmt og þeir eiga enga framtíðarvon. 39Drottinn bjargar hinum guðræknu. Hann er þeim hjálp og skjól á neyðartímum. 40Þeir treysta honum og því hjálpar hann þeim og frelsar þá frá vélráðum óguðlegra.
Copyright information for
IslLO