Psalms 38
1 ▼▼38:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼38:1 í flestum biblíum.
Drottinn, ekki refsa mér, þótt þú sért reiður. 3 ▼▼38:2 í flestum biblíum.
Örvar þínar standa í mér og hönd þín liggur þungt á mér. 4 ▼▼38:3 í flestum biblíum.
– 5 ▼▼38:4 í flestum biblíum.
Vegna reiði þinnar er ég sjúkur maður, heilsa mín er farin vegna synda minna. Syndir mínar líkjast flóði sem færir mig í kaf, eins og byrði sem ég kikna undan. 6 ▼▼38:5 í flestum biblíum.
– 7 ▼▼38:6 í flestum biblíum.
Ólykt leggur af sárum mínum – það er drep í þeim. Ég er ráðþrota vegna synda minna. Ég ráfa um í angist liðlangan daginn. 8 ▼▼38:7 í flestum biblíum.
Lendar mínar brenna af sviða og líkami minn er helsjúkur. 9 ▼▼38:8 í flestum biblíum.
Máttur minn er þrotinn og ég er örvæntingu nær. 10 ▼▼38:9 í flestum biblíum.
Drottinn, ég þrái bót á meini mínu! Þú heyrir kvein mín og andvörp. 11 ▼▼38:10 í flestum biblíum.
Hjartað hamast í brjósti mér, kraftar mínir búnir og sjónin dvín. 12 ▼▼38:11 í flestum biblíum.
Ástvinir mínir og góðir grannar forðast sjúkdóm minn og böl og frændur mínir eru á bak og burt. 13 ▼▼38:12 í flestum biblíum.
Óvinir mínir sæta færis að drepa mig. Liðlangan daginn sitja þeir á svikráðum, brugga mér banaráð. 14 ▼▼38:13 í flestum biblíum.
– 15 ▼▼38:14 í flestum biblíum.
En illráð þeirra verka ekki á mig! Ég virði þá ekki viðlits. Áform þeirra rætast ekki, 16 ▼▼38:15 í flestum biblíum.
því að ég vona á þig, Drottinn, Guð minn. Kom þú og vernda mig. 17 ▼▼38:16 í flestum biblíum.
Þaggaðu niður í þeim sem hlæja að óförum mínum. 18 ▼▼38:17 í flestum biblíum.
Ég er að falli kominn og angist mín er enn hin sama. 19 ▼▼38:18 í flestum biblíum.
Ég játa syndir mínar og iðrast þess sem ég hef gert. 20 ▼▼38:19 í flestum biblíum.
En ofsóknum óvina minna linnir ekki og heift þeirra minnkar ekki. Þeir hata mig án ástæðu. 21 ▼▼38:20 í flestum biblíum.
Þeir launa mér gott með illu, hata mig fyrir góðverk mín. 22 ▼▼38:21 í flestum biblíum.
Yfirgefðu mig ekki, Drottinn. Vík ekki frá mér! 23 ▼▼38:22 í flestum biblíum.
Komdu skjótt og hjálpaðu mér, þú frelsari minn!
Copyright information for
IslLO