‏ Psalms 39

1
39:1 í sumum biblíum.
2
39:1 í flestum biblíum.
Ég hugsaði: „Ég ætla ekki að kvarta, né segja neitt ljótt meðan óguðlegir heyra til.“
3
39:2 í flestum biblíum.
4
39:3 í flestum biblíum.
Og ég þagði. En hið innra leið mér verr og verr. Ég hélt aftur af mér, en gremjan magnaðist í mér. Að lokum gat ég ekki orða bundist:
5
39:4 í flestum biblíum.
„Drottinn, fæ ég aðeins að lifa örfá ár í viðbót?
6
39:5 í flestum biblíum.
7
39:6 í flestum biblíum.
Ævi mín er lítið lengri en höndin á mér! Og í þínum augum er hún nánast ekki neitt! Maðurinn, hvað er hann? Vindblær, flöktandi skuggi! Ys hans og amstur kemur engu til leiðar. Hann rakar saman fé sem svo aðrir eyða!“

8
39:7 í flestum biblíum.
En á hvern vona ég þá? Drottinn, ég vona á þig!

9
39:8 í flestum biblíum.
Frelsa mig frá syndum mínum svo að heimskingjarnir hafi mig ekki að spotti.

10
39:9 í flestum biblíum.
Drottinn, ég þegi því að þú hefur talað. Ég vil ekki kvarta, því að þú hefur refsað mér.

11
39:10 í flestum biblíum.
Drottinn láttu refsingu þína taka enda – ég þoli ekki meira!
12
39:11 í flestum biblíum.
Þegar þú hirtir manninn vegna synda hans, þá er nánast úti um hann. Hann er sem mölétin flík, já, hann líður burt eins og gufa.
13
39:12 í flestum biblíum.
Heyr þú bæn mína, Drottinn, hlustaðu á hróp mitt! Vertu ekki hljóður við tárum mínum. Mundu að ég er gestur hér, förumaður á þessari jörð eins og forfeður mínir.

14
39:13 í flestum biblíum.
Miskunna þú mér, Drottinn og læknaðu mig. Lofaðu mér aftur að sjá glaðan dag áður en ég dey.
Copyright information for IslLO