‏ Psalms 40

1
40:1 í sumum biblíum.
2
40:1 í flestum biblíum.
Ég setti alla mína von á Drottin. Hann heyrði kvein mitt og að lokum bjargaði hann mér.
3
40:2 í flestum biblíum.
Hann dró mig upp úr glötunargröfinni, hinni botnlausu leðju, og lyfti mér upp á klett. Hann gerði mig styrkan í gangi.

4
40:3 í flestum biblíum.
Þá fylltist munnur minn lofsöng – lofgjörð um Guð. Margir hlustuðu er ég söng um velgjörðir hans við mig. Þeir munu einnig lúta honum og lofa hann, setja traust sitt á hann.
5
40:4 í flestum biblíum.
Þeir sem treysta Drottni verða lánsamir, þeir sem forðast ráð dramblátra og halda sér frá lygi.

6
40:5 í flestum biblíum.
Drottinn, Guð minn, mörg dásemdarverk hefur þú gert og mikillar umhyggju höfum við notið. Ekkert kemst í samjöfnuð við þig! Mér endist ekki tími til að rifja upp öll þín undraverk!

7
40:6 í flestum biblíum.
Sláturfórnir og matfórnir þráir þú ekki frá lýð þínum, og brennifórnir heimtar þú ekki. Nei, þú þráir að ég þjóni þér alla ævi.
8
40:7 í flestum biblíum.
Ég sagði: „Sjá, ég kem, rétt eins og orð þitt býður mér.
9
40:8 í flestum biblíum.
Það að gera vilja þinn, Drottinn minn, þrái ég því að lögmál þitt er ritað á hjarta mitt!“

10
40:9 í flestum biblíum.
Ég hef vitnað um það fyrir öllum, aftur og aftur, að þú fyrirgefur syndir. Það veistu Drottinn.
11
40:10 í flestum biblíum.
Ég hef ekki þagað yfir réttlæti þínu heldur boðað það öllum. Allur söfnuðurinn hefur heyrt mig tala um elsku þína og trúfesti.

12
40:11 í flestum biblíum.
Þess vegna, Drottinn minn, taktu ekki miskunn þína frá mér! Ég á allt mitt undir kærleika þínum og náð.
13
40:12 í flestum biblíum.
Sért þú ekki með mér, er úti um mig. Vandamál mín eru mér ofvaxin, og syndir mínar – sem eru fleiri en hárin á höfði mér – hafa lamað mig. Ég veit ekki mitt rjúkandi ráð.

14
40:13 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, ég hrópa til þín! Frelsa þú mig! Komdu fljótt og hjálpaðu mér.
15
40:14 í flestum biblíum.
16
40:15 í flestum biblíum.
Ruglaðu þá í ríminu; sem sækjast eftir lífi mínu. Sendu þá burt með skömm!

17
40:16 í flestum biblíum.
Allir þeir sem elska Drottin og leita hans, skulu gleðjast yfir hjálpræði hans. Þeir segi án afláts: „Mikill er Drottinn!“

18
40:17 í flestum biblíum.
Ég er aumur og fátækur, en þó ber Drottinn umhyggju fyrir mér. Þú, Guð minn, ert hjálp mín, og frelsari; Ó, komdu og bjargaðu mér! Láttu það ekki dragast!.
Copyright information for IslLO