‏ Psalms 41

1
41:1 í sumum biblíum.
2
41:1 í flestum biblíum.
Guð blessar þann sem hjálpar bágstöddum. Á mæðudeginum bjargar Drottinn honum.
3
41:2 í flestum biblíum.
Drottinn verndar hann og heldur í honum lífinu. Hann lætur hann njóta sæmdar og frelsar hann frá óvinum hans.
4
41:3 í flestum biblíum.
Drottinn annast hann á sóttarsæng, veitir honum hvíld og hressing.

5
41:4 í flestum biblíum.
Ég bað: „Drottinn, miskunnaðu mér. Læknaðu sál mína því að ég hef syndgað gegn þér.“

6
41:5 í flestum biblíum.
Óvinir mínir biðja mér bölbæna og segja: „Bara að hann deyi sem fyrst svo að allir gleymi honum!“
7
41:6 í flestum biblíum.
Sumir sem heimsækja mig í veikindunum eru að þykjast. Innst inni hata þeir mig og líkar vel að ég er sjúkur. Þegar út er komið baktala þeir mig.
8
41:7 í flestum biblíum.
Hatursmenn mínir hæða mig og spotta. Þeir skrafa og pískra hvað gera skuli þegar ég er allur
9
41:8 í flestum biblíum.
„Þetta er banvænt, hvað sem það er,“segja þeir, „honum mun aldrei batna.“

10
41:9 í flestum biblíum.
Og besti vinur minn, hann snerist líka gegn mér, maðurinn sem ég treysti svo vel, hann sem át við borð mitt.
11
41:10 í flestum biblíum.
En, Drottinn, yfirgef mig ekki! Miskunnaðu mér og læknaðu mig svo að ég geti endurgoldið þeim!
12
41:11 í flestum biblíum.
Ég veit að þú elskar mig og að þú munt ekki láta óvini mína hlakka yfir mér.
13
41:12 í flestum biblíum.
Vegna sakleysis míns hefur þú varðveitt mig og lætur mig lifa með þér að eilífu.

14
41:13 í flestum biblíum.
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.
Copyright information for IslLO