‏ Psalms 44

1
44:1 í sumum biblíum.
2
44:1 í flestum biblíum.
Guð, við höfum heyrt um máttarverk þín á dögum forfeðra okkar. Þeir hafa sagt:
3
44:2 í flestum biblíum.
Hann rak heiðnu þjóðirnar úr landinu og gaf okkur það, lét Ísrael setjast hér að.
4
44:3 í flestum biblíum.
Ekki sigruðu þeir af eigin krafti, heldur vegna máttar þíns og velþóknunar þinnar á þeim.

5
44:4 í flestum biblíum.
Þú ert konungur minn og Guð. Láttu þjóð þína vinna sigur!
6
44:5 í flestum biblíum.
Aðeins í þínum krafti og nafni sigrum við óvininn.
7
44:6 í flestum biblíum.
Vopnin duga skammt, þau tryggja ekki sigur.
8
44:7 í flestum biblíum.
Aðeins með þinni hjálp getum við sigrað.

9
44:8 í flestum biblíum.
Guð, aftur og aftur hrósa ég mér af þér. Hvernig get ég þakkað þér sem skyldi!
10
44:9 í flestum biblíum.
En þó hefur þú, Drottinn, nú um stund yfirgefið okkur og ekki stutt í orustum.
11
44:10 í flestum biblíum.
Já, þú hefur barist gegn okkur og við höfum flúið. Óvinir okkar gerðu árás. Þeir rændu og rupluðu.
12
44:11 í flestum biblíum.
Þú hefur farið með okkur eins og sláturfé, tvístrað okkur meðal þjóðanna.
13
44:12 í flestum biblíum.
Þú selur þjóð þína fyrir lítið, metur hana einskis virði.
14
44:13 í flestum biblíum.
Nágrannarnir hæða okkur og spotta vegna alls sem þú lætur á okkur dynja.
15
44:14 í flestum biblíum.
Þín vegna er „Gyðingur!“háðsyrði og hneyksli meðal þjóðanna, öllum til ama.
16
44:15 í flestum biblíum.
17
44:16 í flestum biblíum.
Ég verð fyrir stöðugum skömmum, mér er formælt og ég fyrirlitinn af hefnigjörnum óvinum.

18
44:17 í flestum biblíum.
Og þetta hefur gerst, Drottinn, þrátt fyrir tryggð okkar við þig. Sáttmála þinn höfum við ekki rofið.
19
44:18 í flestum biblíum.
Ekki höfum við snúið okkur gegn þér, ekki vikið eitt skref af vegi þínum!
20
44:19 í flestum biblíum.
Væri svo, gætum við skilið refsingu þína, landauðn og niðdimmu dauðans.
21
44:20 í flestum biblíum.
Ef við hefðum hætt að tilbiðja Guð og snúið okkur að hjáguðadýrkun,
22
44:21 í flestum biblíum.
hefði honum þá ekki verið kunnugt um það? Hann sem þekkir alla hluti og leyndarmál mannanna.
23
44:22 í flestum biblíum.
En það höfum við ekki gert. Við erum í dauðans hættu fyrir það eitt að þjóna þér! Við erum eins og lömb leidd til slátrunar!

24
44:23 í flestum biblíum.
Vakna þú! Rís þú á fætur! Hvers vegna sefur þú, Drottinn? Hefur þú hafnað okkur fyrir fullt og allt?
25
44:24 í flestum biblíum.
Hvers vegna horfir þú í aðra átt? Af hverju er þér sama um sorg okkar og neyð?
26
44:25 í flestum biblíum.
Við erum fallnir og liggjum hér endilangir.
27
44:26 í flestum biblíum.
Rís þú upp, Drottinn, komdu og hjálpaðu okkur! Frelsaðu okkur vegna eilífrar elsku þinnar.
Copyright information for IslLO