Psalms 45
1 ▼▼45:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼45:1 í flestum biblíum.
Hjarta mitt svellur af fögrum orðum. Ég vil flytja konungi ljóð. Tunga mín er penni hraðritarans, hún flytur langa sögu á augabragði: 3 ▼▼45:2 í flestum biblíum.
Þú ert fegurri en mannanna börn. Blessun streymir um varir þínar. Velþóknun Guðs er yfir þér að eilífu. 4 ▼▼45:3 í flestum biblíum.
Þú hetja, tak herklæði þín, máttugur ertu og krýndur ljóma 5 ▼▼45:4 í flestum biblíum.
Sæktu fram! Sigursæll ertu, vörður tryggðar og réttlætis. Gakk fram – máttarverk þín verði á allra vörum! 6 ▼▼45:5 í flestum biblíum.
Örvar þínar eru hvesstar, óvinir falla að fótum þér. 7 ▼▼45:6 í flestum biblíum.
Hásæti þitt, ó Guð, stendur um eilífð. Réttlætið er sproti þinn. 8 ▼▼45:7 í flestum biblíum.
Þú elskar hið góða hefur andstyggð á illsku. Því hefur Guð, þinn Guð, sveipað þig gleði sem engan annan. 9 ▼▼45:8 í flestum biblíum.
Skikkja þín ilmar af myrru, alóe og kassíu. Hallir þínar eru skreyttar fílabeini og fyllast af ljúfum tónum. 10 ▼▼45:9 í flestum biblíum.
Konungadætur eru í hópi vinkvenna þinna. Drottningin stendur þér við hlið, fagurlega klædd og skreytt skíra gulli frá Ófír! 11 ▼▼45:10 í flestum biblíum.
– 12 ▼▼45:11 í flestum biblíum.
„Dóttir mín, hlustaðu. Ég vil gefa þér ráð: Gleymdu heimþránni, vertu ekki döpur. Konungurinn elskar þig og gleðst yfir fegurð þinni. Sýndu honum lotningu því hann er herra þinn. 13 ▼▼45:12 í flestum biblíum.
Íbúar Týrus, baða þig í gjöfum og auðmenn þjóðarinnar leita hylli þinnar.“ 14 ▼▼45:13 í flestum biblíum.
Brúðurin – konungsdóttir – bíður í skrauthýsi sínu, íklædd fegursta djásni, kjól skreyttum gulli og perlum. 15 ▼▼45:14 í flestum biblíum.
Fögur er hún! Meyjarnar leiða hana á fund konungs. 16 ▼▼45:15 í flestum biblíum.
Þær fara í skrúðgöngu gegnum hliðið. Þarna er höllin! 17 ▼▼45:16 í flestum biblíum.
„Synir þínir verða allir konungar og feta í fótspor föður síns. Þeir munu sitja á hásætum víðs vegar um heim!“ 18 ▼▼45:17 í flestum biblíum.
„Ég mun gera nafn þitt kunnugt meðal allra kynslóða og þjóðir jarðarinnar munu hylla þig að eilífu.“
Copyright information for
IslLO