‏ Psalms 48

1
48:1 í sumum biblíum.
2
48:1 í flestum biblíum.
Mikill er Drottinn! Vegsömum hann, já lofum hann! Hann býr á sínu helga fjalli í Jerúsalem.
3
48:2 í flestum biblíum.
Fallegt er Síonfjall í norðri. Fjallið sem þjóðin elskar, þar sem konungurinn mikli býr.

4
48:3 í flestum biblíum.
Drottinn sjálfur er verndari Jerúsalem.
5
48:4 í flestum biblíum.
Konungar jarðarinnar sátu þar ráðstefnu. Þeir skoðuðu borgina.
6
48:5 í flestum biblíum.
Þeir urðu agndofa, hræddir og flýðu.
7
48:6 í flestum biblíum.
Hátign Jerúsalem skelfdi þá. Þeir urðu magnþrota eins og kona sem fæðir barn!
8
48:7 í flestum biblíum.
Því að með austanvindinum einum tortímir þú heilum her!
9
48:8 í flestum biblíum.
Dýrð þín, Jerúsalem, er á allra vörum. Þú ert borgin þar sem Guð býr, hann sem ríkir yfir hersveitum himinsins. Við höfum séð hana eigin augum! Guð hefur reist Jerúsalem. Hún mun standa að eilífu.

10
48:9 í flestum biblíum.
Drottinn, í musterinu hugleiðum við kærleika þinn.
11
48:10 í flestum biblíum.
Nafn þitt er þekkt um alla jörðina. Þú ert lofaður um víða veröld vegna hjálpræðis þíns. Vegsemd þín breiðist um allan heim því alls staðar framkvæmir þú réttlætisverk.
12
48:11 í flestum biblíum.
Gleð þig, Jerúsalem! Gleð þig Júdaættkvísl! Því að Guð mun vissulega láta þig ná rétti þínum.
13
48:12 í flestum biblíum.
Komið og skoðið borgina! Gangið um og teljið turnana!
14
48:13 í flestum biblíum.
15
48:14 í flestum biblíum.
Lítið á múrinn og sjáið hallirnar og segið komandi kynslóð frá því að slíkur sé Drottinn! Hann mun leiða okkur um aldur og ævi.
Copyright information for IslLO