Psalms 5
1 ▼▼5:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼5:1 í flestum biblíum.
Drottinn, hlustaðu á orð mín. Heyr þú mína einlægu bæn. 3 ▼▼5:2 í flestum biblíum.
Hlustaðu á kveinstafi mína, þú Guð, konungur minn, því að ég mun aldrei biðja til neins nema þín. 4 ▼▼5:3 í flestum biblíum.
Á hverjum morgni horfi ég til himins, já til þín, og legg bænir mínar fram fyrir þig. 5 ▼▼5:4 í flestum biblíum.
Ég veit að þú fyrirlítur óguðleika og að þeir sem iðka hið illa fá ekki að dveljast hjá þér. 6 ▼▼5:5 í flestum biblíum.
Hrokafullir syndarar standast augnaráð þitt ekki, því að þú hatar illgjörðir þeirra. 7 ▼▼5:6 í flestum biblíum.
Þú munt eyða þeim sem tala lygi og þú hefur andstyggð á morðum og svikum. 8 ▼▼5:7 í flestum biblíum.
En hvað um mig? Af náð þinni fæ ég að ganga inn í musteri þitt, umvafinn vernd þinni og ást. Ég vil tilbiðja þig í djúpri lotningu. 9 ▼▼5:8 í flestum biblíum.
Drottinn, leiddu mig eins og þú lofaðir mér, annars munu óvinir mínir sigra mig. Segðu mér skýrt hvað ég á að gera, og hvert ég á að fara, 10 ▼▼5:9 í flestum biblíum.
því að þeir reyna að blekkja mig. Hjörtu þeirra eru full af illsku. Tortíming og dauði býr í ráðum þeirra og þeir nota svik og pretti sér til framdráttar. 11 ▼▼5:10 í flestum biblíum.
Ó, Guð láttu þá fá makleg málagjöld. Þeir lendi í eigin gildru. Hrintu þeim burt vegna hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér. 12 ▼▼5:11 í flestum biblíum.
En þeir sem treysta þér gleðjast og kætast. Þeir hrópa af gleði því þú verndar þá. Þeir sem elska þig gleðjast yfir þér. 13 ▼▼5:12 í flestum biblíum.
Því að þú, ó Guð, blessar hinn trúaða, þú verndar hann með skildi elsku þinnar.
Copyright information for
IslLO