Psalms 52
1 ▼▼52:1 í sumum biblíum.
Þennan sálm orti Davíð 2 ▼▼52:Title í sumum biblíum.
til að andmæla óvini sínum Dóeg sem síðar tók af lífi áttatíu og fimm presta og fjölskyldur þeirra (sjá: 1. Sam. 22.). 3 ▼▼52:1 í flestum biblíum.
Kallar þú þig hetju?! Þú sem hreykir þér af ódæði gegn þjóð Guðs og herðir þig gegn miskunn hans. 4 ▼▼52:2 í flestum biblíum.
Þú ert eins og skeinuhættur hnífur, þú svikahrappur! 5 ▼▼52:3 í flestum biblíum.
Þú elskar illt meir en gott, lygi umfram sannleika. 6 ▼▼52:4 í flestum biblíum.
Rógburð elskar þú og annað skaðræðistal! 7 ▼▼52:5 í flestum biblíum.
En Guð mun koma þér á kné, draga þig út úr húsi þínu og uppræta af landi lifenda. 8 ▼▼52:6 í flestum biblíum.
Hinir réttlátu munu sjá það og óttast Guð, síðan hlægja og segja: 9 ▼▼52:7 í flestum biblíum.
„Svo fer fyrir þeim sem fyrirlíta Guð og treysta á mátt sinn og megin, þeim sem þrjóskast í illsku sinni.“ 10 ▼▼52:8 í flestum biblíum.
Ég er sem grænt olífutré í garði Guðs. Ég treysti á miskunn hans meðan ég lifi. 11 ▼▼52:9 í flestum biblíum.
Drottinn, ég vil vegsama þig að eilífu og þakka það sem þú hefur gert. Ég segi hinum trúuðu: Góður er Guð!
Copyright information for
IslLO