‏ Psalms 58

1 ▼
▼58:1 í sumum biblíum.
–
2 ▼
▼58:1 í flestum biblíum.
Þið konungar og leiðtogar þjóðanna, talið þið sannleika? Er réttlæti í dómum ykkar og úrskurðum?
3 ▼
▼58:2 í flestum biblíum.
Nei, svo er ekki. Þið eruð allir svikarar sem seljið „réttlæti“fyrir mútur.
4 ▼
▼58:3 í flestum biblíum.
Slíkir menn hafa allt frá fæðingu vikið af réttum vegi. Þeir hafa talað lygi frá því þeir fengu málið.
5 ▼
▼58:4 í flestum biblíum.
–
6 ▼
▼58:5 í flestum biblíum.
Eiturnöðrur eru þeir, slöngur sem daufheyrast við skipunum særingamannsins.

7 ▼
▼58:6 í flestum biblíum.
Drottinn, slíttu úr þeim eiturbroddinn! Dragðu vígtennurnar úr þessum vörgum, ó Guð.
8 ▼
▼58:7 í flestum biblíum.
Láttu þá hverfa eins og jörðin hafi gleypt þá. Sláðu vopnin úr höndum þeirra.
9 ▼
▼58:8 í flestum biblíum.
Láttu þá þorna upp eins og snigla og ekki sjá sólina frekar en þeir sem andvana eru fæddir.
10 ▼
▼58:9 í flestum biblíum.
Guð mun svipta þeim burt, eyða þeim skjótar en pottur hitnar yfir eldi.

11 ▼
▼58:10 í flestum biblíum.
Þá munu hinir guðhræddu fagna, þegar réttlætið sigrar og þeir fá að ganga um blóðidrifin stræti fallinna óvina.
12 ▼
▼58:11 í flestum biblíum.
Þá munu menn sjá að réttlætið sigrar og að Guð dæmir jörðina með réttvísi.
Copyright information for IslLO