Psalms 59
1Þennan sálm orti Davíð þegar Sál konungur sendi menn heim til hans til að handsama hann og drepa (sjá: 1. Sam. 19:11). 2Ó, Guð minn, frelsaðu mig frá óvinum mínum! Verndaðu mig gegn þeim sem vilja drepa mig! 3Forðaðu mér frá þessum glæpalýð, þessum morðingjum. 4Þeir sitja um líf mitt. Sterkir menn bíða útifyrir. Drottinn, þeir eru ekki hér af því að ég hafi gert þeim rangt. 5Samt vilja þeir drepa mig! Drottinn, vaknaðu! Sjáðu hvað er að gerast! Hjálpaðu mér! 6Þú Drottinn, Guð hinna himnesku hersveita, Guð Ísraels, rís þú upp og refsa heiðnu þjóðunum sem umhverfis okkur búa. Miskunna ekki illgjörðamönnum. 7Að kvöldi koma þeir og njósna. Þeir snuðra eins og hundar og ráfa um borgina. 8Ég heyri háðsglósur þeirra og hvernig þeir formæla Guði. „Enginn heyrir til okkar,“segja þeir. 9En þú Drottinn, hlærð að þeim, gerir einnig gys að heiðingjunum sem umhverfis okkur búa. 10Guð, þú ert styrkur minn! Ég vil syngja þér lof, því að þú ert skjól mitt og hlíf. 11Guð mætir mér með náð sinni. Hann lætur mig sjá þegar óvinir mínir verða auðmýktir. 12Ekki lífláta þá, þeirri ráðningu gleymir þjóð mín fljótt. Steyptu þeim heldur af stóli. Varpa þeim til jarðar, Drottinn, þú skjöldur minn. 13Þeir eru hrokafullir. Þeir formæla og ljúga. 14Sviptu þeim burt með reiði þinni svo að þeir verði ekki framar til. Láttu þá kenna á því og sjá að þú, Drottinn, ert við völd í Ísrael og um allan heim. 15Á hverju kvöldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og ráfa um borgina, urra og leita að æti. 16En ég? – Á hverjum morgni vil ég syngja um miskunn þína og mátt, því að á degi neyðarinnar varstu mér vígi. 17Þú styrkur minn, um þig vil ég syngja ljóðin mín. Þú háborg mín! Þú minn miskunnsami Guð!
Copyright information for
IslLO