Psalms 60
1 ▼▼60:1 í sumum biblíum.
Þennan sálm orti Davíð 2 ▼▼60:Title í sumum biblíum.
þegar hann átti í ófriði við Sýrlendinga og óvíst var um úrslit. Þetta gerðist á sama tíma og Jóab, hershöfðingi Ísraels, vann sigur á 12.000 Edomítum í Saltdalnum. 3 ▼▼60:1 í flestum biblíum.
Þú Guð, hefur útskúfað okkur og brotið niður varnirnar. Þú hefur reiðst okkur og tvístrað. Drottinn sýndu aftur miskunn þína. 4 ▼▼60:2 í flestum biblíum.
Þú lést landið skjálfa, sprungur opnuðust. Drottinn læknaðu það og græddu sárin. 5 ▼▼60:3 í flestum biblíum.
Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, við reikuðum eins og drukknir menn. 6 ▼▼60:4 í flestum biblíum.
En nú hefur þú reist okkur herfána! Þangað stefnum við allir sem elskum þig. 7 ▼▼60:5 í flestum biblíum.
Réttu út þína sterku hönd og frelsaðu okkur! Bjargaðu ástvinum þínum. 8 ▼▼60:6 í flestum biblíum.
– 9 ▼▼60:7 í flestum biblíum.
Guð hefur heitið hjálp. Hann hefur svarið það við heilagleika sinn! Er að undra þótt ég sé glaður?! „Síkem, Súkkót, Gíleað, Manasse – allt er þetta mitt,“segir hann. „Júda gefur konung og Efraím varðmenn. 10 ▼▼60:8 í flestum biblíum.
Móab er þjónn minn og Edóm þræll. Og yfir Filisteu æpi ég siguróp!“ 11 ▼▼60:9 í flestum biblíum.
Hver fer með til Edóms, inn í víggirtar borgir hans? 12 ▼▼60:10 í flestum biblíum.
Guð! Hann sem áður útskúfaði og yfirgaf hersveitir okkar! 13 ▼▼60:11 í flestum biblíum.
Drottinn, styð okkur gegn óvinunum, því að ekki hjálpa menn. 14 ▼▼60:12 í flestum biblíum.
Með Guðs hjálp vinnum við stórvirki, hann mun fótum troða óvinina.
Copyright information for
IslLO