‏ Psalms 63

1
63:1 í sumum biblíum.
Þennan sálm orti Davíð þegar hann leitaði skjóls í Júdeueyðimörkinni.

2
63:1 í flestum biblíum.
Ó, þú Guð minn, ég leita þín! Mig þyrstir eftir þér í þessari skrælnuðu eyðimörk. Ó, hve ég þrái þig!
3
63:2 í flestum biblíum.
Þegar ég gekk um í helgidómi þínum þá leitaði ég þín, þráði að sjá veldi þitt og dýrð.

4
63:3 í flestum biblíum.
Miskunn þín er betri en lífið sjálft! Með vörum mínum lofa ég þig.
5
63:4 í flestum biblíum.
Ég vil lofa þig svo lengi sem ég lifi, lyfta höndum mínum í bæn til þín.
6
63:5 í flestum biblíum.
Þá mun sál mín mettast og verða glöð, og munnur minn lofa þig með fögnuði.

7
63:6 í flestum biblíum.
Ég ligg andvaka um nætur og hugsa um þig, rifja upp öll þau skipti sem þú hefur hjálpað.
8
63:7 í flestum biblíum.
Þá fyllist ég gleði, finn mig öruggan hjá þér.
9
63:8 í flestum biblíum.
Ég vil halda mér fast við þig, og styðjast við þína sterku hönd.
10
63:9 í flestum biblíum.
Þeir munu sjálfir deyja sem brugga mér banaráð, og hverfa niður til heljar.
11
63:10 í flestum biblíum.
Þeir munu falla fyrir sverði, verða sjakölum að bráð.

12
63:11 í flestum biblíum.
Ég vil gleðjast í Guði! Og þeir sem honum treysta skulu fagna sigri því að munni lygaranna hefur verið lokað.
Copyright information for IslLO