Psalms 65
1 ▼▼65:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼65:1 í flestum biblíum.
Ó, þú Guð á Síon, við lofum þig og vegsömum og efnum heit okkar við þig. 3 ▼▼65:2 í flestum biblíum.
Þú heyrir bænir og því leita allir menn til þín. 4 ▼▼65:3 í flestum biblíum.
Margar freistingar urðu mér að falli, ég gerði margt rangt, en þú fyrirgafst mér allar þessar syndir. 5 ▼▼65:4 í flestum biblíum.
Sá er heppinn sem þú hefur útvalið, sá sem fær að búa hjá þér í forgörðum helgidóms þíns og njóta allsnægta í musteri þínu. 6 ▼▼65:5 í flestum biblíum.
Með krafti þínum sýnir þú réttlæti þitt, þú Guð, frelsari okkar. Þú ert skjól öllum mönnum, allt að endimörkum jarðar. 7 ▼▼65:6 í flestum biblíum.
Þú reistir fjöllin í mætti þínum, 8 ▼▼65:7 í flestum biblíum.
þú stöðvar brimgný hafsins og háreysti þjóðanna. 9 ▼▼65:8 í flestum biblíum.
Þeir sem búa við ysta haf óttast tákn þín og austrið og vestrið kætast yfir þér! 10 ▼▼65:9 í flestum biblíum.
Þú vökvar jörðina og eykur frjósemi hennar. Ár þínar og uppsprettur munu ekki þorna. Þú gerir jörðina hæfa til sáningar og gefur þjóð þinni ríkulega uppskeru. 11 ▼▼65:10 í flestum biblíum.
Með steypiregni vökvar þú plógförin og mýkir jarðveginn – útsæðið spírar og vex! 12 ▼▼65:11 í flestum biblíum.
– 13 ▼▼65:12 í flestum biblíum.
Landið klæðist grænni kápu. Heiðarnar blómstra og hlíðarnar brosa, allt er loðið af gróðri! 14 ▼▼65:13 í flestum biblíum.
Hjarðirnar liðast um hagana og dalirnir fyllast af korni. Allt fagnar og syngur!
Copyright information for
IslLO