‏ Psalms 68

1
68:1 í sumum biblíum.
2
68:1 í flestum biblíum.
Þegar Guð rís á fætur þá tvístrast óvinir hans! Þeir sem hata hann flýja sem mest þeir mega.
3
68:2 í flestum biblíum.
Blástu þeim burt eins og reyk í vindi! Bræddu þá eins og vax í eldi! Þannig munu óguðlegir tortímast fyrir Guði.

4
68:3 í flestum biblíum.
En hinir trúuðu skulu fagna. Þeir kætist og gleðjist
5
68:4 í flestum biblíum.
og lofsyngi Guði! Hefjið lofsöng til hans sem ekur um á skýjunum. Nafn hans er Drottinn! Gleðjist og fagnið í nærveru hans.
6
68:5 í flestum biblíum.
Hann er faðir föðurlausra og verndari ekkna, hann er heilagur.
7
68:6 í flestum biblíum.
Hann lætur hinn einmana komast heim aftur og leiðir fanga út í frelsið á ný. Þar verður sungið og fagnað! En uppreisnarmenn skulu búa við sult og seyru.

8
68:7 í flestum biblíum.
Guð, þegar þú leiddir þjóð þína gegnum öræfin,
9
68:8 í flestum biblíum.
þá skalf jörðin og himnarnir nötruðu. Sínaífjall hneigði sig fyrir þér af virðingu og ótta – þér Guði Ísraels.
10
68:9 í flestum biblíum.
11
68:10 í flestum biblíum.
Þú, Guð, sendir regnskúrir yfir land þitt, hresstir það og endurnærðir. Þar settist þjóð þín að. Þú gafst hinum hrjáðu heimili og skjól.

12
68:11 í flestum biblíum.
13
68:12 í flestum biblíum.
Drottinn lætur orð sín rætast og þegar hann talar flýja óvinirnir. Konurnar sem heima eru flytja gleðifrétt: „Óvinaherinn er flúinn, þeir sem vildu eyða öllu og umturna!“Og konur í Ísrael skipta herfanginu.
14
68:13 í flestum biblíum.
Þær hylja sig með gulli og silfri, rétt eins og dúfan vængjum sínum!
15
68:14 í flestum biblíum.
Þegar Guð stökkti óvinunum á flótta þá snjóaði á Salmonsfjalli.

16
68:15 í flestum biblíum.
17
68:16 í flestum biblíum.
Þið voldugu Basanfjöll, þið illkleifu tindar! Hvers vegna horfið þið með öfund til Síonar – fjallsins sem Drottinn hefur kosið sér til bústaðar?
18
68:17 í flestum biblíum.
Með þúsundum vagna lagði Drottinn upp frá Sínaí og kom til síns heilaga musteris á Síon.
19
68:18 í flestum biblíum.
Hann kleif fjöllin, tók með sér fjölda bandingja og veitti viðtöku gjöfum frá mönnum, jafnvel uppreisnarmönnum. Og nú býr hann hér!

20
68:19 í flestum biblíum.
Lofaður sé Drottinn! Hann leiðir okkur dag eftir dag og hjálpar í öllum vanda.
21
68:20 í flestum biblíum.
Guð er hjálpræðisguð. Hann er alvaldur og bjargar frá dauða.
22
68:21 í flestum biblíum.
En óvinum sínum eyðir hann, þeim sem þrjóskast og halda áfram á glæpabraut.
23
68:22 í flestum biblíum.
Hann segir: „Komið!“við óvini þjóðar sinnar, þá sem fela sig til fjalla eða í hafdjúpunum.
24
68:23 í flestum biblíum.
Þjóð hans vill troða þá undir, ganga í blóði þeirra og gefa hundum hræ þeirra.

25
68:24 í flestum biblíum.
Guð, konungur minn, gengur inn til musteris síns.
26
68:25 í flestum biblíum.
Fremst fara söngvarar, þá hljóðfæraleikarar og stúlkur sem slá taktinn.
27
68:26 í flestum biblíum.
Allur Ísrael gleðjist með Guði, uppsprettu Ísraels á þessum hátíðardegi.
28
68:27 í flestum biblíum.
Fremst fer Benjamínsætt, hún er minnst. Þá koma prinsar og öldungar Júda og síðan höfðingjar Sebúlons og Naftalí.
29
68:28 í flestum biblíum.
Sýn þú, Guð, mátt þinn og styrk, því að mikla hluti hefur þú gert.

30
68:29 í flestum biblíum.
Konungar jarðarinnar gefa gjafir til musteris þíns í Jerúsalem.
31
68:30 í flestum biblíum.
Ávíta þú óvini okkar, Drottinn. Færðu þá hingað, sneypta og berandi skattinn! Tvístraðu þeim sem efna til ófriðar.
32
68:31 í flestum biblíum.
Egyptar sendi gull og Bláland fórni höndum í lotningu til Guðs.
33
68:32 í flestum biblíum.
Syngið frammi fyrir Drottni, þið konungsríki jarðarinnar, syngið honum lofgjörðarsöng,
34
68:33 í flestum biblíum.
honum, Guði eilífðar, sem ekur um himininn og talar með þrumuraust svo að undir tekur.

35
68:34 í flestum biblíum.
Drottinn hefur máttinn! Dýrð hans ljómar yfir Ísrael og hans voldugu verk birtast á himninum.
36
68:35 í flestum biblíum.
Við krjúpum fyrir honum í lotningu og ótta í musteri hans. Ísraels Guð veitir þjóð sinni mátt og megin. Lofaður sé Guð!
Copyright information for IslLO