Psalms 72
1Guð, hjálpa þú konunginum, að hann fái skorið úr málum manna eftir vilja þínum og hjálpaðu syni hans til að gera rétt. 2– 3Gefðu að hann dæmi þjóð þína með sanngirni og láti hina snauðu ná rétti sínum. Stjórnspeki hans leiði af sér velferð og grósku. 4Styrktu hann að vernda fátæklinga og þurfandi og eyða kúgurum þeirra. 5Þá mun hann lifa meðan sólin skín og tunglið gefur birtu. Já, að eilífu! 6Stjórn hans verður mild og góð eins og gróðrarskúr á sprettutíma. 7Á ríkisárum hans mun réttlætið blómgast og friður eflast, já, meðan veröldin er til. 8Ríki hans mun ná frá hafi til hafs, frá Evfrat-fljóti til endimarka jarðar. 9Óvinir hans munu lúta honum og leggjast flatir á jörðina við fætur hans. 10Konungarnir frá Tarsus og eylöndunum munu færa honum gjafir, og skatt þeir frá Saba og Seba. 11Allir konungar munu lúta honum og þjóðir þeirra þjóna honum. 12Hann mun bjarga hinum snauða er hrópar á hjálp, og hinum þjáða sem enginn réttir hjáparhönd. 13Hann aumkast yfir bágstadda og þá sem ekkert eiga og liðsinnir fátæklingum. 14Hann verndar þá og leysir frá ofríki og kúgun því að líf þeirra er dýrmætt í augum hans. 15Lífið blasir við honum og menn munu gefa honum gull frá Saba. Hann mun njóta fyrirbæna margra og fólk mun blessa hann liðlangan daginn. 16Landið mun gefa góða uppskeru, einnig til fjalla eins og í Líbanon. Fólki mun fjölga í borgunum eins og gras vex á engi! 17Nafn hans mun lofað að eilífu og meðan sólin skín mun orðstír hans aukast. Allir munu óska sér blessunar hans og þjóðirnar segja hann sælan. 18Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, hann einn gerir furðuverk. 19Lofað sé hans dýrlega nafn að eilífu! Öll jörðin fyllist dýrð hans! Amen, já amen! 20(Hér enda sálmar Davíðs Ísaísonar.)
Copyright information for
IslLO