‏ Psalms 75

1 ▼
▼75:1 í sumum biblíum.
–
2 ▼
▼75:1 í flestum biblíum.
Þökk sé þér Drottinn! Máttarverk þín staðfesta umhyggju þína.

3 ▼
▼75:2 í flestum biblíum.
„Já,“svarar Drottinn, „og þegar stundin er komin mun ég refsa öllum illgjörðamönnum!
4 ▼
▼75:3 í flestum biblíum.
Þótt jörðin nötri og íbúar hennar skjálfi af ótta, eru undirstöður hennar traustar, enda verk handa minna!“

5 ▼
▼75:4 í flestum biblíum.
Ég sagði hinum hrokafullu að láta af drambi sínu og illmennunum að hætta sínum ögrandi augnagotum,
6 ▼
▼75:5 í flestum biblíum.
að láta af þrjósku og hroka.
7 ▼
▼75:6 í flestum biblíum.
Velgengni og völd getur enginn þakkað sér sjálfum,
8 ▼
▼75:7 í flestum biblíum.
allt eru það gjafir frá Guði. Hann upphefur einn, en niðurlægir annan.
9 ▼
▼75:8 í flestum biblíum.
Drottinn heldur á bikar fullum af freyðandi víni – það er dómurinn gegn illmennum heimsins. Þau skulu drekka hann í botn!
10 ▼
▼75:9 í flestum biblíum.
En ég mun vegsama Guð um aldur og ævi.
11 ▼
▼75:10 í flestum biblíum.
Styrkur hinna óguðlegu verður að engu, en réttlátir skulu ríkja með reisn.
Copyright information for IslLO