‏ Psalms 80

1
80:1 í sumum biblíum.
2
80:1 í flestum biblíum.
Þú hirðir Ísraels sem leiðir þjóð þína eins og hjörð. Þú Guð sem situr á hásæti uppi yfir verndarenglunum, beygðu þig niður og hlustaðu á bæn mína. Láttu veldi þitt birtast í geisladýrð!
3
80:2 í flestum biblíum.
Leyfðu ættkvíslum Efraíms, Benjamíns og Manasse að verða vitni að því er þú frelsar okkur með mætti þínum.

4
80:3 í flestum biblíum.
Dragðu okkur til þín á ný, ó Guð. Líttu til okkar með velþóknun og kærleika, það er okkar eina von.
5
80:4 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, þú Guð sem stjórnar hersveitum himnanna, hve lengi ætlar þú að draga bænheyrsluna og láta reiði þína haldast?
6
80:5 í flestum biblíum.
Þú hefur alið okkur á sorg og sút
7
80:6 í flestum biblíum.
og gert okkur að andstyggð í augum nágrannaþjóðanna sem hæða okkur og spotta.

8
80:7 í flestum biblíum.
Drottinn hersveitanna, dragðu okkur til þín á ný. Líttu til okkar með velþóknun og kærleika, annars er úti um okkur.
9
80:8 í flestum biblíum.
Þú fluttir okkur frá Egyptalandi eins og gæðavínvið, upprættir heiðingjana og gróðursettir okkur í landinu.
10
80:9 í flestum biblíum.
Þú plægðir jörðina og braust landið, við skutum rótum og klæddum hæðirnar.

11
80:10 í flestum biblíum.
Við skyggðum á fjöllin og breiddum úr okkur eins og greinar sedrustrésins,
12
80:11 í flestum biblíum.
þöktum landið frá Miðjarðarhafi og allt til Evfrat.
13
80:12 í flestum biblíum.
En nú hefur þú brotið niður múra okkar og eftir stöndum við varnarlausir.
14
80:13 í flestum biblíum.
Landið hefur verið eytt og er nú orðið að bústað villidýra.

15
80:14 í flestum biblíum.
Við biðjum þig, þú Guð hinna himnesku hersveita, komdu og blessaðu okkur. Líttu niður af himni, sjáðu þjáningar okkar og hlúðu að þessum vínviði þínum!
16
80:15 í flestum biblíum.
Vernda það sem þú sjálfur gróðursettir, einkasoninn þinn!
17
80:16 í flestum biblíum.
Óvinirnir lögðu okkur að velli og kveiktu í borgunum. Þeir farast fyrir augliti þínu!
18
80:17 í flestum biblíum.
Styrktu manninn sem þú elskar, soninn sem þú valdir
19
80:18 í flestum biblíum.
og við munum aldrei snúa við þér baki. Lífgaðu okkur á nýjan leik og þá skulum við ákalla þig.

20
80:19 í flestum biblíum.
Drottinn, Guð hersveitanna, dragðu okkur til þín á ný. Líttu niður til okkar og láttu okkur sjá velþóknun þína.
Copyright information for IslLO