Psalms 83
1 ▼▼83:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼83:1 í flestum biblíum.
Guð, vertu ekki þögull og afskiptalaus þegar við biðjum til þín. Svaraðu okkur! Já, bjargaðu okkur! 3 ▼▼83:2 í flestum biblíum.
Heyrirðu ekki skarkalann og ysinn í hópi óvina þinna? Sérðu ekki hvað þeir aðhafast, þessir hatursmenn þínir? 4 ▼▼83:3 í flestum biblíum.
Þeir eru með ráðagerðir um að tortíma þeim sem þú elskar! 5 ▼▼83:4 í flestum biblíum.
„Komum!“segja þeir, „þurrkum út Ísrael, svo að þeir hætti að vera til og gleymist.“ 6 ▼▼83:5 í flestum biblíum.
Þetta var samþykkt af leiðtogum þeirra. Þessir undirrituðu sáttmála um að fylkja liði gegn almáttugum Guði: 7 ▼▼83:6 í flestum biblíum.
Ísmaelítar, Edomítar, Móabítar og Hagrítar. 8 ▼▼83:7 í flestum biblíum.
Einnig Gebalmenn, Ammon, Amalek, Filistear og Týrusbúar. 9 ▼▼83:8 í flestum biblíum.
Assýría hefur líka slegist í hópinn og gjört bandalag við afkomendur Lots. 10 ▼▼83:9 í flestum biblíum.
Farðu með þá eins og Midíansmenn forðum, já eins og þú fórst með Sísera og Jabín við Kíshonlæk 11 ▼▼83:10 í flestum biblíum.
og með óvini þína við Endór, en lík þeirra urðu að áburði á jörðina. 12 ▼▼83:11 í flestum biblíum.
Láttu höfðingja þeirra falla eins og Óreb og Seeb, foringja þeirra deyja líkt og Seba og Salmúna 13 ▼▼83:12 í flestum biblíum.
sem sögðu: „Leggjum undir okkur haglendi Drottins!“ 14 ▼▼83:13 í flestum biblíum.
Þú, Guð minn, feyktu þeim burt eins og ryki, eins og hismi fyrir vindi 15 ▼▼83:14 í flestum biblíum.
– eins og skógi sem brennur til ösku. 16 ▼▼83:15 í flestum biblíum.
Flæmdu þá burt í óveðri, skelfdu þá með fellibyl þínum. 17 ▼▼83:16 í flestum biblíum.
Drottinn, láttu þá kenna á andúð þinni uns þeir viðurkenna mátt þinn og vald. 18 ▼▼83:17 í flestum biblíum.
Láttu öll þeirra verk mistakast, svo að þeir skelfist og blygðist sín 19 ▼▼83:18 í flestum biblíum.
og viðurkenni að þú einn, Drottinn, ert Guð yfir öllum guðum og að jörðin öll er á þínu valdi.
Copyright information for
IslLO