‏ Psalms 88

1
88:1 í sumum biblíum.
2
88:1 í flestum biblíum.
Drottinn, þú Guð minn og hjálpari minn, ég ákalla þig um daga og nætur.
3
88:2 í flestum biblíum.
Svaraðu bænum mínum! Hlustaðu á hróp mitt,
4
88:3 í flestum biblíum.
því að ég er altekinn ótta og finn dauðann nálgast.
5
88:4 í flestum biblíum.
„Líf hans er að fjara út,“segja sumir, „það er vonlaust með hann.“
6
88:5 í flestum biblíum.
Ég er einn og yfirgefinn og bíð þess eins að deyja, rétt eins og þeir sem falla á vígvellinum.

7
88:6 í flestum biblíum.
Þú hefur varpað mér niður í myrkradjúp.
8
88:7 í flestum biblíum.
Reiði þín hefur þrýst mér niður, hver holskeflan á fætur annarri kaffærir mig.
9
88:8 í flestum biblíum.
Vinir mínir sneru við mér bakinu og eru horfnir – það var af þínum völdum. Ég er innikróaður, sé enga undankomuleið.
10
88:9 í flestum biblíum.
Augu mín eru blinduð af tárum. Daglega kalla ég eftir hjálp þinni. Ó, Drottinn, ég lyfti höndum í bæn um náð!

11
88:10 í flestum biblíum.
Gerðu kraftaverk svo að ég deyi ekki, því hvað gagnar mér hjálp þín ef ég ligg kaldur í gröfinni? Þá get ég ekki lofað þig!
12
88:11 í flestum biblíum.
Geta hinir látnu vegsamað gæsku þína? Syngja þeir um trúfesti þína?!
13
88:12 í flestum biblíum.
Getur myrkrið borið vitni um máttarverk þín? Hvernig eiga þeir sem búa í landi gleymskunnar að tala um hjálp þína?

14
88:13 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, dag eftir dag bið ég fyrir lífi mínu.
15
88:14 í flestum biblíum.
Drottinn, hvers vegna hefur þú útskúfað mér? Af hverju hefur þú snúið þér burt frá mér og litið í aðra átt?
16
88:15 í flestum biblíum.
Allt frá æsku hef ég átt erfiða ævi og oft staðið andspænis dauðanum. Ég er magnþrota gagnvart örlögum þeim sem þú hefur búið mér.
17
88:16 í flestum biblíum.
Heift þín og reiði hefur lamað mig. Þessi skelfing þín hefur næstum gert út af við mig.
18
88:17 í flestum biblíum.
Alla daga hvolfist hún yfir mig.
19
88:18 í flestum biblíum.
Ástvinir, félagar og kunningjar – öll eru þau farin. Ég sit hér einn í myrkri.
Copyright information for IslLO