‏ Psalms 9

1
9:1 í sumum biblíum.
2
9:1 í flestum biblíum.
Drottinn, ég vil lofa þig af öllu hjarta og segja öllum frá þínum dásamlegu verkum!
3
9:2 í flestum biblíum.
Ég vil fagna, já, kætast þín vegna! Ég vil lofsyngja þér, Drottinn Guð, þú ert öllum guðum æðri.

4
9:3 í flestum biblíum.
Óvinir mínir hörfuðu undan, já, hrösuðu og fórust fyrir augliti þínu.
5
9:4 í flestum biblíum.
Þú hefur látið mig ná rétti mínum, ábyrgst verk mín og sagt frá hásæti þínu að þau séu góð.
6
9:5 í flestum biblíum.
Þú hefur ávítað þjóðirnar og eytt illvirkjunum, þurrkað út nöfn þeirra að eilífu.

7
9:6 í flestum biblíum.
Þið, óvinir mínir, eruð búnir að vera, og eigið ykkur ekki viðreisnar von. Drottinn mun eyða borgum ykkar og minning þeirra mun gleymast.

8
9:7 í flestum biblíum.
9
9:8 í flestum biblíum.
En Drottinn lifir að eilífu. Hann situr í hásæti sínu, sker úr málum þjóðanna og dæmir þær með réttvísi.
10
9:9 í flestum biblíum.
Allir kúgaðir komi til hans. Hann er skjól þeirra og athvarf á neyðarstundu.
11
9:10 í flestum biblíum.
Allir þeir sem þekkja miskunn þína, Drottinn, treysta á hjálp þína. Þú hefur aldrei yfirgefið þá sem treysta þér.

12
9:11 í flestum biblíum.
Lofsyngið Guði, honum sem býr í Jerúsalem! Víðfrægið dáðir hans um allan heiminn!
13
9:12 í flestum biblíum.
Hann sem refsar morðingjum. Hann hlustar eftir þeim sem hrópa á réttlæti. Hann daufheyrist ekki við hrópum þeirra sem eru í nauðum staddir.

14
9:13 í flestum biblíum.
Og nú, Drottinn, miskunna þú mér, þú sérð hvernig óvinir mínir kvelja mig. Hríf mig úr þessari dauðans hættu.
15
9:14 í flestum biblíum.
Frelsa mig að ég geti lofað þig í allra áheyrn í hliðum Jerúsalem og glaðst yfir því að þú bjargaðir mér.

16
9:15 í flestum biblíum.
Þjóðirnar falla sjálfar í gryfjuna sem þær hafa grafið öðrum, þær hafa lent í eigin gildru.
17
9:16 í flestum biblíum.
Drottinn lætur svikráð þeirra koma þeim sjálfum í koll!

18
9:17 í flestum biblíum.
Illmennin munu hrapa til heljar og eins verða örlög þeirra þjóða sem gleyma Drottni.
19
9:18 í flestum biblíum.
Því að ekki verður skortur hinna snauðu umborinn endalaust og né hjálp fátæklinganna látin dragast lengur.

20
9:19 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, rís þú upp, dæm þjóðirnar og refsa þeim. Lát þær ekki hrósa sigri yfir þér!
21
9:20 í flestum biblíum.
Lát þá skjálfa af ótta og skilja að þeir eru aðeins dauðlegir menn.
Copyright information for IslLO