‏ Psalms 90

1Bæn guðsmannsins Móse.

Drottinn, þú hefur verið okkur athvarf frá kynslóð til kynslóðar.
2Áður en þú skapaðir fjöllin og jörðin varð til, varst þú, ó Guð – þú átt þér hvorki upphaf né endi! 3Þú talar – og maðurinn verður aftur að dufti. 4Þúsund ár eru eins og einn dagur fyrir þér, eins og klukkustund! 5 6Við berumst með straumi tímans og hverfum líkt og í draumi. Við erum eins og grasið sem grær að morgni en skrælnar að kvöldi, visnar og deyr. 7Við föllum fyrir reiði þinni og hnígum fyrir bræði þinni. 8Þú hefur breitt úr syndum okkar frammi fyrir þér – einnig hinum leyndu syndum – engin þeirra er þér hulin. 9Reiði þín er enginn leikur. Er að undra þótt ævin sé erfið og dagarnir líði sem andvarp.

10Ævi okkar er sjötíu ár og þegar best lætur áttatíu ár. En jafnvel bestu árin eru full af mæðu og hégóma. Þau eru horfin áður en varir og við á bak og burt! 11Hver þekkir ógnir reiði þinnar, og hvert okkar óttast þig eins og ber?

12Kenndu okkur að telja alla okkar daga og skilja hve ævin er stutt. Gefðu að við fáum notað hana til góðs.

13Ó, Drottinn, hve lengi er þess að bíða að þú dragir reiði þína í hlé og blessir okkur á nýjan leik? 14Miskunna okkur á hverjum morgni að við megum gleðjast hvern einasta dag. 15Já, gefðu okkur gleði í stað armæðu liðinna daga. 16Leyfðu okkur aftur að reyna máttarverk þín svo að börn okkar sjái dýrð þína eins og við forðum.

17Náð Drottins Guðs sé með okkur. Hann veiti okkur gæfu og gengi.
Copyright information for IslLO