‏ Psalms 92

1
92:1 í sumum biblíum.
2
92:1 í flestum biblíum.
Gott er að þakka Drottni og lofsyngja Guði hinum hæsta.
3
92:2 í flestum biblíum.
Á hverjum morgni segi ég við Drottin: „Þökk sé þér fyrir miskunn þína!“Og á kvöldin fagna ég yfir trúfesti hans.
4
92:3 í flestum biblíum.
Syngið honum lof og leikið undir á hörpu og gígju.
5
92:4 í flestum biblíum.
Drottinn, mikið ertu mér góður. Ég syng af gleði! – Er nokkur hissa á því?

6
92:5 í flestum biblíum.
Ó, Drottinn, mikil eru máttarverk þín!
7
92:6 í flestum biblíum.
Þeir einir sem ekki nenna að hugsa, fara þeirra á mis. Heimskingjarnir skilja ekki
8
92:7 í flestum biblíum.
að hinir óguðlegu – sem í bili virðast hafa það gott – munu afmáðir að eilífu.
9
92:8 í flestum biblíum.
En Drottinn, þú lifir að eilífu, hátt upphafinn á himnum,
10
92:9 í flestum biblíum.
meðan óvinir þínir – illgjörðamennirnir – tvístrast.

11
92:10 í flestum biblíum.
Ég finn styrk og kraft, en Drottinn, allt er það þér að þakka! Blessun þín hefur endurnært mig.
12
92:11 í flestum biblíum.
Ég heyrði dóminn yfir óvinum mínum og sá þegar þeim var eytt.
13
92:12 í flestum biblíum.
En hinir réttlátu munu blómgast líkt og ávaxtatré, já vaxa eins og sedrustrén í Líbanon.

14
92:13 í flestum biblíum.
Því að þeir eru gróðursettir í garði Drottins og njóta umhyggju hans.
15
92:14 í flestum biblíum.
Jafnvel á elliárunum bera þeir ávöxt og eru sem laufguð tré.
16
92:15 í flestum biblíum.
Þeir bera vitni um réttlæti Drottins, að hann er skjól og vernd og allt sem hann gerir er gott!
Copyright information for IslLO