Psalms 93
1– 2Drottinn er konungur! Hann er íklæddur mætti og dýrð. Heimurinn allur er hásæti hans. Ó, Drottinn, þú hefur ríkt frá örófi alda. 3Brimöldur hafsins boða dýrð þína. 4En þú ert meiri en voldugar öldur sem brotna við strendur úthafanna! 5Skipunum þínum fær enginn breytt og heilagleiki er einkenni húss þíns að eilífu.
Copyright information for
IslLO