‏ Psalms 97

1Drottinn er konungur! Allur heimurinn gleðjist! Fagnið þið eyjar við ysta haf!

2Tignarleg ský umlykja hann. Réttlæti og réttvísi eru undirstöður hásætis hans. 3Eldur gengur út frá honum og eyðir öllum óvinum hans. 4Elding hans leiftrar og lýsir upp jörðina. Heimurinn skelfur af ótta. 5Fjöllin bráðna eins og vax fyrir Drottni. 6Himnarnir kunngera réttlæti hans og allar þjóðir sjá dýrð hans.

7Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar – þeir sem stæra sig af falsguðum – því að allir slíkir guðir verða að beygja sig fyrir Drottni. 8 9Jerúsalem og borgirnar í Júda hafa heyrt af réttvísi þinni, Drottinn, og fagna, því að þú ríkir með reisn yfir allri jörðinni og ert hátt yfir alla aðra guði hafinn.

10Drottinn elskar þá sem hata hið illa. Hann verndar líf fylgjenda sinna og frelsar þá undan óguðlegum. 11Ljós skal lýsa hinum réttlátu og gleði hlotnast hinum góðu. 12Allir réttlátir fagni fyrir Drottni og vegsami hans heilaga nafn.
Copyright information for IslLO