‏ Psalms 100

1Öll veröldin fagni fyrir Drottni! 2Þjónið Drottni með gleði, gangið fram fyrir hann með fagnaðarsöng!

3Reynið að skilja hvað í því felst að Drottinn er Guð. Við erum handaverk hans! Fólkið sem hann leiðir.

4Gangið inn um hlið hans með þakkargjörð, í forgarða hans með lofsöng. Þakkið honum, lofið nafn hans. 5Því að Drottinn er góður! Miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kynslóð til kynslóðar.
Copyright information for IslLO