Psalms 101
1Ég vil syngja um réttlætið og miskunnsemina. Ég vil lofsyngja þér, ó Guð! 2Ég, konungurinn, vil kappkosta að lifa heiðarlega og ganga um heimili mitt í grandvarleik – hjálpaðu mér til þess! 3Gefðu mér að forðast allt sem er gróft og ljótt – að fyrirlíta hið illa. 4Já, ég vil ekki vera sjálfselskur og vondur. 5Ég umber ekki þá sem baktala nágranna sinn, og hroka og dramb mun ég ekki þola. 6Ég leita uppi réttláta menn í landinu og kalla þá til starfa, að þeir búi hjá mér, – þeir einir sem grandvarir eru. 7Svikara og lygara þoli ég ekki í mínum húsum. 8Ég þagga niður í illmennunum í landinu og útrými úr borginni öllum óguðlegum.
Copyright information for
IslLO