‏ Psalms 102

1
102:1 í sumum biblíum.
2
102:1 í flestum biblíum.
Drottinn, heyrðu bæn mína! Hlustaðu á ákall mitt!
3
102:2 í flestum biblíum.
Snúðu ekki baki við mér á ógæfutímum. Hneigðu eyra þitt að mér og svaraðu mér fljótt.
4
102:3 í flestum biblíum.
5
102:4 í flestum biblíum.
Ævi mín líður svo hratt, dagarnir fljúga hver af öðrum. Heilsan er búin, hjartað er sjúkt – ég er eins og visið strá. Maturinn er bragðlaus, ég er hættur að finna bragð.
6
102:5 í flestum biblíum.
Ég er ekkert nema skinn og bein.
7
102:6 í flestum biblíum.
Ég er líkastur pelikan í eyðimörk eða uglu í húsarúst.
8
102:7 í flestum biblíum.
Ég ligg andvaka og styn eins og einmana fugl á þaki.

9
102:8 í flestum biblíum.
Óvinir mínir hæða mig og spotta dag eftir dag.
10
102:9 í flestum biblíum.
11
102:10 í flestum biblíum.
Fæða mín er aska, ekki brauð, og drykkur minn blandast tárum mínum. Þú ert mér reiður Drottinn og hefur varpað mér burt frá þér.

12
102:11 í flestum biblíum.
Líf mitt líður burt eins og kvöldskuggi. Ég visna eins og gras
13
102:12 í flestum biblíum.
en þú Drottinn ríkir í dýrð þinni að eilífu. Þinn orðstír mun lifa frá kynslóð til kynslóðar.

14
102:13 í flestum biblíum.
Ég veit að þú munt koma og vægja Jerúsalem. – Gerðu það núna! – Efndu loforð þitt um hjálp.
15
102:14 í flestum biblíum.
Því að þjóð þín elskar hvern stein í múr hennar og jafnvel rykið á strætum hennar.

16
102:15 í flestum biblíum.
Þjóðirnar og konungar þeirra skjálfi fyrir Drottni og hans miklu dýrð,
17
102:16 í flestum biblíum.
því að Drottinn mun endurreisa Jerúsalem og birtast þar í dýrð!
18
102:17 í flestum biblíum.
Hann hlustar á bænir fátæklinganna, gefur gaum að beiðni þeirra.

19
102:18 í flestum biblíum.
Þetta hef ég skráð til þess að komandi kynslóðir lofi Drottin fyrir öll hans verk. Fólk sem enn hefur ekki séð dagsins ljós mun vegsama hann.
20
102:19 í flestum biblíum.
Segið þeim að Drottinn leit niður frá musteri sínu á himnum.
21
102:20 í flestum biblíum.
Hann heyrði stunur þjóðar sinnar í ánauðinni – hún var dauðans matur – og hann frelsaði hana!

22
102:21 í flestum biblíum.
23
102:22 í flestum biblíum.
Þess vegna streyma þúsundir til musteris hans í Jerúsalem og lofa hann og vegsama um alla borgina. Konungar jarðarinnar eru í þeim hópi.

24
102:23 í flestum biblíum.
Hann hefur tekið frá mér lífskraftinn og stytt ævi mína.

25
102:24 í flestum biblíum.
En ég hrópaði til hans: „Þú, Guð sem lifir að eilífu, láttu mig ekki deyja fyrir aldur fram!
26
102:25 í flestum biblíum.
Í upphafi lagðir þú undirstöður jarðarinnar og himnarnir eru verk handa þinna.
27
102:26 í flestum biblíum.
Þau munu hverfa en þú ert að eilífu. Þau fyrnast, líkt og slitin föt sem lögð eru til hliðar.
28
102:27 í flestum biblíum.
En þú ert hinn sami og ár þín taka aldrei enda.

29
102:28 í flestum biblíum.
En afkomendur okkar munu lifa og þú munt varðveita þá, kynslóð fram af kynslóð.“
Copyright information for IslLO