‏ Psalms 103

1Ég vil lofa Guð af öllu hjarta. 2Ég vil vegsama Drottin og minnast allra velgjörða hans við mig. 3Hann fyrirgefur syndir mínar. Hann læknar mig. 4Hann frelsar mig frá dauða. Hann umlykur mig náð og miskunn. 5Hann hleður á mig gjöfum! Hann endurnýjar lífsþrótt minn og gerir mig sterkan sem örn. 6Hann réttir hlut þeirra sem misrétti þola. 7Hann opinberaði Móse vilja sinn og hver hann væri og einnig þjóð sinni Ísrael.

8Hann er miskunnsamur og mildur við þá sem eiga það ekki skilið. Hann er seinn til reiði og fullur náðar og kærleika.

9Hann er ekki langrækinn né eilíflega reiður. 10Hann hefur ekki refsað okkur fyrir syndir okkar eins og sanngjarnt var 11því að miskunn hans við þá sem óttast hann og heiðra, er eins há og himinninn er yfir jörðinni. 12Hann fleygði burt syndum okkar og það langt, já, eins langt og austrið er frá vestrinu! 13Eins og faðir miskunnar börnum sínum, eins hefur Drottinn miskunnað þeim sem óttast hann, 14því hann veit að við erum bara dauðlegir menn 15og að ævi okkar er stutt og líður hratt. Við erum eins og jurt sem vex og blómgast 16en skrælnar fyrr en varir í brennheitum vindinum, deyr og gleymist.

17 18En miskunn Drottins endist að eilífu fyrir þá sem reiða sig á orð hans og óttast hann. Og hjálpræði hans nær til barnabarnanna ef við höldum sáttmála hans og hlýðum boðum hans.

19Drottinn hefur reist sér hásæti á himnum og þaðan stjórnar hann heiminum. 20Lofið Drottin, þið voldugu englar sem framkvæmið skipanir hans og takið við fyrirmælum hans. 21Lofið Drottin, þið hersveitir englanna sem framfylgið vilja hans.

22Öll verk Drottins, um víða veröld, lofa hann! Einnig ég vil lofa hann!
Copyright information for IslLO