Psalms 108
1 ▼▼108:1 í sumum biblíum.
– 2 ▼▼108:1 í flestum biblíum.
Ó, Guð, nú vil ég lofa þig! Ég vil syngja og fagna frammi fyrir þér. 3 ▼▼108:2 í flestum biblíum.
Vaknaðu, harpa og gígja! Við viljum bjóða morgunroðann velkominn með söng! 4 ▼▼108:3 í flestum biblíum.
Ég vil lofa þig um víða veröld, Drottinn, vegsama þig hjá hverri þjóð. 5 ▼▼108:4 í flestum biblíum.
Því að miskunn þín nær til skýjanna og trúfesti þín er ómælanleg! 6 ▼▼108:5 í flestum biblíum.
Láttu tign þína og mátt birtast og dýrð þína breiðast yfir jörðina. 7 ▼▼108:6 í flestum biblíum.
Hlustaðu á ákall vina þinna og bjargaðu þeim með krafti þínum, já, bænheyrðu þá. 8 ▼▼108:7 í flestum biblíum.
Fögnum og gleðjumst því að við höfum fengið loforð frá Guði! Hann hefur lofað að gefa okkur Síkemland og Súkkótdal. 9 ▼▼108:8 í flestum biblíum.
„Ég á Gíleað, ég á Manasse og Efraím er hjálmurinn á höfði mínu. Júda er veldissproti minn 10 ▼▼108:9 í flestum biblíum.
en Móab og Edóm fyrirlít ég og yfir Filisteu æpi ég siguróp.“ 11 ▼▼108:10 í flestum biblíum.
Hver nema Guð getur veitt mér styrk til að sigrast á víggirtum borgum? Hver nema hann getur opnað mér leið inn í Edóm? 12 ▼▼108:11 í flestum biblíum.
Drottinn, hefur þú útskúfað okkur? Hefur þú gert her okkar óvígan? 13 ▼▼108:12 í flestum biblíum.
Ó, veittu okkur lið gegn óvinum okkar, því að mannahjálp er gagnslaus. 14 ▼▼108:13 í flestum biblíum.
Með hjálp Guðs munum við vinna hetjudáð og hann mun gjörsigra óvini okkar.
Copyright information for
IslLO