‏ Psalms 112

1Dýrð sé Guði! Að trúa á Guð og treysta honum veitir ómælda blessun. Sæll er sá maður sem hefur unun af boðorðum hans.

2Börn hans njóta hvarvetna heiðurs, því að góður arfur eflir göfugan mann. 3Sjálfur býr hann við auðlegð og góðverk hans gleymast ekki. 4Réttlátum er hann ljós í myrkri – miskunn hans og gæska eru augljós. 5Sá mun blessun hljóta sem er góðgjarn og fús að lána og framkvæmir verk sín með réttvísi.

6Slíkur maður verður ekki fórnarlamb illra atvika. Umhyggja Guðs fyrir honum verður umræðuefni þeirra sem þekkja hann. 7Hann óttast ekki vondar fréttir, né kvíðir því sem koma skal. Hann er öruggur og veit að Drottinn annast hann. 8Þess vegna óttast hann ekkert og horfir á óvini sína með stakri ró. 9Hann hefur miðlað mildilega og gefið fátækum. Góðverk hans munu ekki gleymast. Hann mun njóta vinsælda og hafa áhrif.

10Þetta sjá óguðlegir og þeim gremst. Þeir munu gnísta tönnum og tortímast og óskir þeirra rætast ekki.
Copyright information for IslLO