Psalms 113
1Hallelúja! Þið þjónar Drottins, lofið nafn hans. 2Lofað sé nafn hans um aldur og ævi! 3Vegsamið hann frá sólarupprás til sólarlags! 4Því að hann er hátt upphafinn yfir þjóðirnar og dýrð hans er himnunum hærri. 5Hver kemst í samjöfnuð við Guð hinn hæsta? 6Hann situr hátt og horfir niður á himin og jörð. 7Hann reisir hinn fátæka úr skítnum, leiðir hinn hungraða frá sorphaugnum 8og fær þeim sæti með tignarmönnum! 9Fyrir hans hjálp verður hún hamingjusöm móðir – konan sem ekki gat fætt manni sínum börn. Hallelúja! Lof sé Drottni!
Copyright information for
IslLO