‏ Psalms 114

1Í árdaga, þegar Ísraelsmenn flúðu Egyptaland, land hinnar framandi tungu, 2varð Júda og Ísrael bústaður Guðs og ríki hans.

3Hafið rauða sá þá koma og hopaði. Og áin Jórdan, hún stöðvaðist svo að þeir gátu gengið yfir. 4Fjöllin hoppuðu eins og hrútar og hæðirnar sem lömb! 5Hvað olli því, þú rauða haf, að þú hopaðir til beggja hliða? Og hvers vegna, áin Jórdan, stöðvaðist rennsli þitt? 6Og þið fjöll, hvers vegna hoppið þið eins og hrútar og þið hæðir sem lömb?

7Nötra þú jörð frammi fyrir augliti Drottins, Guðs Jakobs, 8því að hann lét uppsprettu opnast á klettinum.
Copyright information for IslLO