‏ Psalms 115

1Drottinn, gefðu ekki okkur, heldur þínu nafni dýrðina. Gefðu að allir vegsami þig vegna miskunnar þinnar og trúfesti. 2Hvers vegna leyfir þú heiðingjunum að segja: „Guð þeirra er ekki til!“

3Guð er á himnum og hann gerir það sem hann vill. 4Guðir heiðingjanna eru mannaverk, smíðisgripir úr silfri og gulli.

5Þeir hvorki tala né sjá, en hafa þó bæði munn og augu! 6Þeir heyra ekki, finna enga lykt 7og hreyfa hvorki legg né lið! Þeir geta ekki sagt eitt einasta orð! 8Smiðirnir sem þau gera og tilbiðja, eru engu gáfaðri en þau!

9Ísrael, treystu Drottni! Hann er hjálpari þinn, hann er skjöldur þinn. 10Þið prestar af Aronsætt, treystið Drottni! Hann er ykkar hjálp og hlíf. 11Þú lýður hans, þið öll, yngri sem eldri, treystið honum. Hann er hjálp og skjöldur.

12Drottinn mun ekki gleyma okkur og hann blessar okkur öll. Hann blessar Ísraels fólk og prestana af Arons ætt, 13já, alla, bæði háa og lága – þá sem óttast hann.

14Drottinn blessi þig og börnin þín. 15Drottinn, hann sem skapaði himin og jörð, mun blessa þig – já, þig! 16Himinninn tilheyrir Drottni, en jörðina gaf hann mönnunum.

17Ekki geta andaðir menn lofað Drottin hér á jörðu, 18en það getum við! Við lofum hann að eilífu! Hallelúja! Lof sé Drottni!
Copyright information for IslLO