Psalms 118
1Þakkið Drottni því að hann er góður! Elska hans varir að eilífu. 2Söfnuður Ísraels lofi hann og segi: „Elska hans varir að eilífu!“ 3Og prestar Arons taki undir og syngi: „Elska hans varir að eilífu!“ 4Og heiðingjarnir sem trú hafa tekið segi: „Elska hans varir að eilífu.“ 5Í angist minni bað ég til Drottins. Hann svaraði mér og frelsaði mig. 6Ég er hans! Hvað skyldi ég þá óttast? Hvað geta dauðlegir menn gert mér? 7Ég er vinur Drottins og hann hjálpar mér. Óvinir mínir skulu vara sig! 8Betra er að treysta Drottni, en að reiða sig á menn. 9Öruggara er að leita hjálpar hans en stuðnings frá voldugum konungi! 10Þó óvinaþjóðirnar ráðist gegn mér, allar sem ein, þá mun ég ganga fram undir gunnfána hans og gjöreyða þeim. 11Já, þær umkringja mig og gera árás, en ég útrými þeim undir sigurmerki hans. 12Þær þyrpast að mér eins og flugnager, blossa gegn mér sem eyðandi eldur. En undir fána hans gjörsigra ég þá! 13Þú, óvinur minn, gerðir allt til að útrýma mér, en Drottinn kom mér til hjálpar. 14Þegar orustan stóð sem hæst var hann styrkur minn og lofsöngur og að endingu veitti hann mér sigur. 15– 16Á heimilum réttlátra syngja menn fagnaðarljóð, enda nýkomnar fréttir af sigri! 17Ekki mun ég deyja, heldur lifa og segja öllum frá máttarverkum hans. 18Drottinn refsaði mér, en ofurseldi mig ekki dauðanum. 19Ljúkið upp hliðum musterisins – ég ætla að ganga inn og þakka Drottni. 20Um þessi hlið liggur leiðin til Drottins og réttlátir ganga þar inn. 21Ó, Drottinn, þökk sé þér að þú bænheyrðir og bjargaðir mér. 22Steinninn sem smiðirnir höfðu hafnað var gerður að hornsteini hússins! 23Það var að vilja og fyrir tilstilli Drottins og er í einu orði sagt stórkostlegt! 24Þetta er dagurinn sem Drottinn hefur gert. Fögnum og verum glöð í dag! 25Ó, Drottinn, hjálpa þú. Frelsa þú okkur. Láttu okkur ná árangri. 26Blessaður sé sá sem er að koma, sá sem sendur er af Drottni. Við blessum þig frá helgidóminum. 27– 28Drottinn er ljósið sem lýsir okkur. Dansið fyrir honum, já, alla leiðina að altari hans. Hann er minn Guð, ég þakka honum og lofa hann. 29Þakkið Drottni, því að hann er góður! Miskunn hans varir að eilífu!
Copyright information for
IslLO