Psalms 12
1– 2Drottinn! Hjálpa þú! Hinum trúuðu fækkar óðum. Hvar eru þeir sem hægt er að treysta? 3Allir ljúga og iðka svik og pretti, en einlægnin virðist fokin út í veður og vind. 4– 5En Drottinn mun ekki fara mjúkum höndum um þá sem iðka ranglæti. Hann mun útrýma þessum lygurum sem segja: „Við skulum ljúga til um áform okkar, enda ráðum við sjálfir hvað við segjum!“ 6Þessu svarar Drottinn: „Ég mun rísa upp og verja þá kúguðu, fátæku og hrjáðu. Ég mun frelsa þá samkvæmt bænum þeirra.“ 7Loforð Drottins eru áreiðanleg. Hvert orð á vörum hans er satt og rétt eins og marghreinsað skíragull. 8Drottinn, við vitum að þú munt varðveita þitt fólk frá verkum illra manna, þó svo þeir vaði alls staðar uppi og njóti heiðurs í landinu.
Copyright information for
IslLO